Almenn sumarstörf 18 ára+ – Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 14.04.2026

Umsóknarfrestur til: 30.04.2026

Tengiliður: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir




<br />


Vinnuskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir almennu sumarstarfsfólki, annars vegar í störf aðstoðarflokkstjóra í almennum garðyrkjuhópum með ungmennum og hinsvegar við almenn sumarstörf á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar.

Helstu verkefni og ábyrgð.

  • Vera fyrirmynd ungs fólks
  • Þátttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi. 
  • Aðstoð við flokkstjóra Vinnuskólahópa/leikjanámskeiða
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungmennum/börnum
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri þann 1.júní 
  • Íslensku -og enskukunnátta, A1 skv samevrópskum tungumálaramma

Aðrar upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags

Umsóknafrestur er til og með 30. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið mariannak@hafnarfjordur.is 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.


Önnur störf