Vinnuskólinn – starf við slátt, garðyrkju og fleira
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 15.04.2026
Umsóknarfrestur til: 21.05.2026
Tengiliður: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Sumarstarfsmenn sem munu starfa í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar
Störf eru í boði í þremur mismunandi hópum og biðjum við umsækjendur um að nefna þá hópa sem þau hafa áhuga á að sækja um, í athugasemdum. Þeir hópar sem í boði eru:
· Slátturhópur
· Viðhaldshópur
· Blómahópur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Grassláttur og hirðing
- Hreinsun og umhirða trjá -og gróðurbeða
- Hreinsun á opnum svæðum
- Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
- Þökulagning og kantskurður
- Viðhald göngustíga, girðinga og annara eigna á vegum bæjarins
Hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri
- Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
- Góð íslensku -og enskukunnátta.
Aðrar upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
- Boðið er upp á starf upp að hámarki 468 klst yfir sumartímann
- Vinnutíminn er 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og 8:00-12:00 á föstudögum
- Vinnuvika starfsfólks Hafnarfjarðar er 36 klst
Umsóknafrestur er til og með 21. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Viktorssoní gegnum netfangið hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.