Sérfræðingur á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 29.04.2026

Umsóknarfrestur til: 14.05.2026

Metnaðarfullur sérfræðingur óskast til framtíðarstarfa á heimili fyrir fatlað fólk

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan sérfræðing á heimili fyrir fatlað fólk í fjölbreytt og spennandi starf. Starfshlutfall er 80-100% og þarf viðkomandi að geta unnið allar tegundir vakta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og er starfið laust frá 1.ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að gerð þjónustu- og einstaklingsáætlana í samráði við notanda og endurmat á þeim.
  • Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann.
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna.
  • Virkjar þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu.
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi.
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni  

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði þroskaþjálfunar, sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfunar eða öðru viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Reynsla af verkefnastýringu eða utan umhaldi verkefna kostur.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólk.
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Samviskusemi, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir, Áróra Huld Bjarnadóttir, Forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf