Flokkstjórar hjá samstarfsfélögum – Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 14.04.2026

Umsóknarfrestur til: 30.04.2026

Tengiliður: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir




<br />


Auglýst er eftir flokkstjórum til sumarstarfa við flokkstjórn á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hjá hvaða félagi umsækjandi óskar eftir sumarstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Flokkstjóri stýrir verkefnum og hópum innan félagsins s.s. við umhirðu svæðis eða á leikjanámskeiði.
  • Vera fyrirmynd ungs fólks
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
  • Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum
  • Skil á tímaskráningum og frammistöðumati nemenda
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
  • Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
  • Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslensku -og enskukunnátta, B2 skv samevrópskum tungumálaramma

Aðrar upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
  • Flokkstjórar hjá samstarfsfélögum Vinnuskóla Hafnafjarðar geta unnið að hámarki 231 klst yfir sumarið
  • Vinnuvika starfsfólks Hafnarfjarðar er 36 klst

Umsóknafrestur er til og með 30. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið mariannak@hafnarfjordur.is 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.


Önnur störf