Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 08.04.2026

Umsóknarfrestur til: 22.04.2026

Tengiliður: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir

Víðistaðaskóli leitar eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi heimilisfræðikennara sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda, teymisvinnu/kennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem og annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Annast kennslu í heimilisfræði á mið- og unglingastigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi

Starfshlutfall er 100% og ráðið er frá 1. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is. 

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 25. apríl 2026.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf