Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 14.04.2026
Umsóknarfrestur til: 30.04.2026
Tengiliður: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir
Á sumrin er Vinnuskóli Hafnarfjarðar stærsta starfstöðin í bænum. Starf í skólanum gefur einstaka möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða bæjarlandið í samstarfi við ungt fólk. Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við flokkstjórn almennra hópa Vinnuskólans sem starfa út frá grunnskólum Hafnarfjarðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun starfs vinnuskólahóps og vera fyrirmynd ungs fólks
- Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
- Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum
- Skil á tímaskráningum og frammistöðumati nemenda
- Önnur störf samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
- Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
- Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
- Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Góð íslensku -og enskukunnátta, B2 skv samevrópskum tungumálaramma
Aðrar upplýsingar um starfið
- Flokkstjórar hefja störf 4.júní
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
- Flokkstjórar almennra grunnskólahópa hópa í Vinnuskóla Hafnafjarðar geta unnið að hámarki 300 klst
- Vinnuvika starfsfólks Hafnarfjarðar er 36 klst
Umsóknafrestur er til og með 30. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið mariannak@hafnarfjordur.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.