Þroskaþjálfi á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 16.04.2026

Umsóknarfrestur til: 10.05.2026

Þroskaþjálfi óskast á heimili fyrir fatlað fólk

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan þroskaþjálfa til starfa á heimili fatlaðs fólks frá 1.september 2026. Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í vaktavinnu á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann s.s. gerð þjónustuáætlana, skipulagi, skráningu og öðru.
  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar.
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna.
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
  • Veitir þjónustunotendum einstaklingsmiðan persónulegan stuðning í daglegu lífi.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi
  • Reynsla eða þekking af skipulagi faglegs starfs á sviði þroskaþjálfunar æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólk
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, samviskusemi og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int) 

 

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir, Áróra Huld Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

 

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026.

 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf