Deildarstjóri á miðstigi – Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 01.05.2026
Umsóknarfrestur til: 15.05.2026
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir deildarstjóra á miðstigi
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Leiða miðstig og hafa yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Leiða námsmatsvinnu og önnur verkefni tengd henni
- Taka á hegðunarvanda nemenda á kennslustigi
- Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun skólastarfs
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Starfa samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni í samræmi við starfslýsingu
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
- Farsæl kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla
- Haldgóð þekking á kennslufræði miðstigs
- Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
- Haldgóð þekking á Mentor
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþætting
- Þekking og reynsla af SMT er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt skv. viðmiðum Evrópska tungumálarammans
Ef starfið vekur áhuga þinn er þér velkomið að hafa samband.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma: 664-5894 eða Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 664-5895.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk.
Greinargóð ferilsskrá skal fylgja umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.