Skóla- og frístundaliði í Hraunsel og Drekasel í sumar – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.04.2026

Umsóknarfrestur til: 14.05.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 100% starf í sumarfrístund í Hraunsel og Drekasel

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli og Drekaseli sem er frístundaheimili fyrir börn með einhverfu frá kl. 8-16:30 virka daga. Sérstök áhersla í starfinu er að koma til móts við öll börn og mikilvægt er að umsækjandi hafi jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins. 

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Ráðið er í starfið frá 11. júní til 17. júlí og frá 5. ágúst til 21. ágúst. 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Önnur störf