Þroskaþjálfi í Hraunborg – deild fyrir börn með einhverfu í Hraunvallaskóla

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.04.2026

Umsóknarfrestur til: 14.05.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson

Hraunvallaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í Hraunborg, deild fyrir börn með einhverfu

Um er að ræða 80-100% starf skólaárið 2026-2027 og ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.

Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin vinnur út frá styrkleikum barnanna og leggur áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.

Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. 

 Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

·         Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra

·         Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við skólaþjónustu

·         Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

·         Taka þátt í stefnumótunarvinnu

·         Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)

·         Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda

·         Jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

·         Jákvæðni, sveigjanleika og góða samskiptahæfni

·         Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.

Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga við ÞÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is  og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf