Starfsmaður óskast til afleysingr í Miðstöðina – úrræði fyrir fatlað fólk
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 30.04.2026
Umsóknarfrestur til: 10.05.2026
Tengiliður: thordisru@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann til afleysinga í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% starf í afleysingu til 1.árs. Hefðbundin dagvinna frá 8-16 eða 8:30-16:30.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
- Veitir stuðning og fylgd í vinnu og virkni
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Sveigjanleiki í starfi
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur til og með 10. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.