Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri – Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 01.05.2026
Umsóknarfrestur til: 30.06.2026
Tengiliður: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir
Vinnuskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir almennu sumarstarfsfólki, annars vegar í störf aðstoðarflokkstjóra í almennum garðyrkjuhópum með ungmennum og hinsvegar við almenn sumarstörf á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Helstu verkefni og ábyrgð.
- Vera fyrirmynd ungs fólks
- Þátttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi
- Aðstoð við flokkstjóra Vinnuskólahópa/leikjanámskeiða
- Önnur störf samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
- Áhugi á að starfa með ungmennum/börnum
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
- Íslensku -og enskukunnátta, A1 skv samevrópskum tungumálaramma
Aðrar upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
Umsóknum um almenn sumarstörf í vinnuskólanum er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið vinnuskolinn@hafnarfjordur.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.