Kennarar – Leikskólinn Norðurberg

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 24.03.2026

Umsóknarfrestur til: 06.04.2026

Tengiliður: Anna Sigurborg Harðardóttir

Leikskólinn Norðurberg óskar eftir að ráða kennara i 100% stöðu.

Leikskólinn Norðurberg er 6 deilda leikskóli í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Þar dvelja að meðaltali 101 börn og um 34 starfsmenn. Áherslur leikskólans eru: umhverfismennt og útikennsla (Grænfána leikskóli), jákvæð samskipti (Að næra hjartað/PMT), hollusta og hreyfing/slökun, vináttuleikskóli Barnaheilla og  snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna. Á Norðurbergi er starfsfólk með mikinn metnað fyrir starfi sínu og starfsánægja og starfsandi er góður. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa metnað og áhuga fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri, annaborg@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5851 og Gunnhildur Grímsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, gunnhildur.gr@hafnarfjordur.is í síma 555-3484.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og 6. apríl 2026.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli