Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.03.2026

Umsóknarfrestur til: 15.04.2026

Tengiliður: unnur@aslandsskoli.is

Áslandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig fyrir skólaárið 2026-2027.

Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2026

Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og er staðsettur í Áslandsshverfi í Hafnarfirði. Áslandsskóli er heildstæður grunnskóli með 1.-10.bekk og eru nemendur um 430 talsins. Einkunnarorð Áslandsskóla eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Áslandsskóli er heilsueflandi grunnskóli og er unnið markvisst að þeim málum innan skólans. Lögð er áhersla á að nemendur fái námsefni við hæfi og þrói þannig og þroski hæfileika sína með markvissum hætti. Í skólanum er lögð áhersla á vellíðan nemenda og góðan námsárangur.

Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag. 

Skólinn byggir stefnu sína á fjórum stoðum náms og menntunar sem eru:

  • Allar dygðir
  • Hnattrænn skilningur
  • Þjónusta við samfélagið
  • Að gera allt framúrskarandi vel

Hver árgangur mætir a.m.k. einu sinni í viku í morgunstund á sal. Morgunstundir eru vettvangur til að vinna með dygðir og stoðir skólans.

Áslandsskóli er símalaus skóli frá 1.-10.bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu á yngsta stigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans þar með talið eftir SMT skólafærni
  • Vinnur eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Góð og víðtæk reynsla á kennslu í grunnskóla 
  • Góð þekking á SMT skólafærni
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, unnur@aslandsskoli.is, og Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri halfdanth@aslandsskoli.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 15.apríl 2026

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Náms- og starfsráðgjafi – Öldutúnsskóli