15. júlí kl. 20 – Hafnarsvæðið fyrr og nú

Lúðvík Geirsson leiðir göngu um söguslóðir hafnarinnar, þar sem sagt verður frá fyrstu siglingum til Hafnarfjarðar, þróun verslunar og kaupsiglinga, uppbyggingu hafnarmannvirkja, umsvifum og næstu framkvæmdum á hafnarsvæðinu. Gengið verður frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt