Áfram Sólveig, Guðlaug og Tómas!
Á föstudagskvöld mætir lið Hafnarfjarðar liði Akraness í fjögurra liða úrslitum í spurningakeppninni Útsvari. Í fyrsta skipti er lið Hafnarfjarðar komið í fjögurra liða úrslit og er nú aðeins tveimur þáttum frá keppni um fyrsta sætið. Íbúar eru hvattir til að mæta í sjónvarpssal.
Á föstudagskvöld mætir lið Hafnarfjarðar liði Akraness í fjögurra liða úrslitum í spurningakeppninni Útsvari. Lið okkar er skipað þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur, Tómasi Geir Howser Harðarsyni og Sólveigu Ólafsdóttur – frábær hópur sem hefur æft stíft fyrir hverja keppni og árangur erfiðis og skemmtunar orðinn mjög sýnilegur. Í fyrsta skipti er lið Hafnarfjarðar komið í fjögurra liða úrslit og er nú aðeins tveimur þáttum frá keppni um fyrsta sætið.
Íbúar og aðrir velunnarar Hafnarfjarðar eru hvattir til að mæta í sjónvarpssal og hvetja hafnfirska lið áfram til úrslita. Útsending hefst stundvíslega kl. 20:15 og eru gestir hvattir til að vera mættir í sjónvarpssal kl. 19:30. Útsending fer fram hjá RÚV, Efstaleiti 1, föstudagskvöldið 5. maí.
Sendum liðinu okkar góða strauma og hvetjum það til dáða!
Áfram Hafnarfjörður!