Indverskur aðstoðarráðherra setti niður tré við Hvaleyrarvatn

Fréttir

Kirti Vardhan Singh, aðstoðarutanríkisráðherra Indlands, gróðursetti tré við Hvaleyrarvatn til að heiðra móður sína og náttúruna. Hann var hér vegna Arctic Circle ráðstefnunnar.

Eik við Hvaleyrarvatn til heiðurs mæðrum

Ólíkir menningarheimar sameinuðu krafta sína við gróðursetningu eikar við Hvaleyrarvatn á föstudag. Kirti Vardhan Singh, aðstoðarutanríkisráðherra Indlands, gróðursetti tréð í anda indverskrar hefðar þar sem fólk heiðrar móður sína með því að planta tré og hlúa að því.

Árni Stefán, forseti bæjarstjórnar, tók á móti sendinefndinni ásamt bæjarfulltrúum og fulltrúum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Hann bauð gestina velkomna og þakkaði fyrir að velja Hafnarfjörð til gróðursetningarinnar. Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri skógræktarfélagsins, hafði sérvalið eikina fyrir tilefnið og leiðbeindi við gróðursetninguna.

„Jörðin annast okkur eins og móðir“

Singh var hér á landi vegna Arctic Circle og sagði í samtali við fulltrúa bæjarins að umfangsmikið átak í trjágróðursetningu stæði yfir á Indlandi. Forsætisráðherra landsins hefði hrundið því af stað undir heitinu Ek Ped Maa Ke Naam, sem þýða má sem Eitt tré í nafni móður.

„Þetta er ekki átak stjórnvalda heldur átak sem fólkið leiðir,“ sagði Singh við athöfnina. Hann útskýrði að með gróðursetningunni tengdust umhyggja fyrir jörðinni og virðing fyrir mæðrum.

„Jörðin annast okkur eins og móðir. Þess vegna gróðursetjum við líka tré fyrir jörðina og gerum það í nafni móður okkar,“ sagði Singh.

Tré sem sparnaður til framtíðar

Trjágróðursetning á sér líka persónulega sögu í fjölskyldu ráðherrans. Singh kvaðst koma úr bændaætt í þorpi þar sem fallegur skógur væri í nágrenninu. Faðir hans hefði hvatt fjölskyldur í þorpinu til að planta tveimur tekktrjám í nafni dætra sinna.

Hann sagði að brúðkaup hefðu oft verið fjölskyldum stúlkna þung fjárhagsleg byrði. Sumar hefðu þurft að veðsetja jarðir sínar til að standa undir kostnaðinum. Tekkviður væri hins vegar verðmætur og með því að planta trjánum mætti byggja upp sparnað meðan dæturnar yxu úr grasi.

„Þegar dóttirin var komin á giftingaraldur hafði tréð líka vaxið og öðlast verðmæti sem hægt var að nýta til að greiða fyrir brúðkaupið,“ sagði hann þegar hann fór yfir hefðina. Enn væru tekktré víða við hús og á landamörkum lítilla jarða í heimahéraði hans. „Þetta er eins og innstæða í banka.“

Við Hvaleyrarvatn var það umhyggjan fyrir náttúrunni og mæðrum sem sameinaði gesti og heimamenn. Að gróðursetningu lokinni var skipst á gjöfum og boðið upp á kaffiveitingar. Singh hreifst af umhverfinu og hafði orð á fegurð þess.

Eikin fær nú að vaxa og dafna við Hvaleyrarvatn, á einum fallegasta stað Hafnarfjarðar, og minna á hlýlega stund þar sem náttúra, fjölskylda og framtíð voru í forgrunni.

Ábendingagátt