Dorgað á milli sólargeislanna á Flensborgarhöfn

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Um 300 börn dorguðu á höfninni hér í Hafnarfirði í dag. Já, það var fjör og þau einbeitt allan tímann

Hafnfirsku börnin dorga!

Um 300 börn tóku þátt í árlegri dorgveiðikeppni við Flensborgarhöfn í dag. Veðrið lék við þátttakendur og veiðin var með besta móti.

Dorgveiðikeppnin hefur verið fastur liður í sumarstarfi Hafnarfjarðar í yfir 30 ár. Höfnin heldur áfram að laða að unga veiðimenn og konur á hverju ári.

Alls veiddust um 50 fiskar af ýmsum tegundum, þar á meðal koli, lúða, margglitta, marhnútur, krossfiskur, skelfiskur og krabbi.

  • Tvíburarnir Arnar og Orri Ernissynir hlutu titilinn Aflaklær ársins eftir að hafa veitt alls 26 fiska.
  • Viktor Logi Stefánsson og Marvin Þór Ívarsson úr frístundarheimilinu Hraunseli veiddu furðifisk ársins, en þeir veiddu krossfisk sem vakti verðskuldaða athygli meðal keppenda.
  • Stærsta fisk dagsins veiddi Huginn Þór Sigurpálsson, sem dró á land glæsilega lúðu og hlaut viðurkenningu fyrir afrekið.

Dorgveiðikeppnin er löngu orðin ein af skemmtilegum sumarhefðum bæjarins þar sem börn fá tækifæri til að njóta útiveru, samveru og veiðigleði við höfnina í hjarta Hafnarfjarðar.

Já, það er gaman að veiða í Hafnarfirði – kynslóð fram af kynslóð!

Ábendingagátt