Níu starfa við jafningjafræðslu í Vinnuskólanum

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Níu ungmenni, fædd á árunum 2008 og 2009, vinna við jafningjafræðslu með ungmennum Vinnuskólans hér í bænum. Þau fræða ekki aðeins heldur hafa sjálf þroskast og lært af starfinu.

Samheldinn hópur í jafningjafræðslunni

Níu ungmenni, fædd á árunum 2008 og 2009, vinna við jafningjafræðslu með unglingum Vinnuskólans hér í bænum. Þau gefa ekki aðeins af sér heldur hafa einnig lært heil ósköp, kynnst hvert öðru og myndað vinskap. Það mátti sjá þar sem þau prófuðu glæný leiktæki á Víðistaðatúni eftir sumarhátíð Vinnuskólans nú í dag.

„Markmið okkar er klárlega að þjálfa leiðtoga,“ segir Torfi Már Markússon, stjórnandi jafningjafræðslunnar og verkstjóri Vinnuskólans.

Á tveggja vikna undirbúningsnámskeið

„Þau hefja störf á tveggja vikna undirbúningsnámskeiði sem á ekki bara að styrkja þau í fræðilegum atriðum áður en þau hefja störf með unglingum Vinnuskólans, heldur einnig sem einstaklinga. Þau vinna við að tala við fólk. Það er ótrúlega þroskandi fyrir þau,“ segir hann.

„Þau hittu 18 fagaðila sem héldu fyrir þau fyrirlestur. Undirbúningurinn sérist um þau málefni sem geta komið upp í jafningjafræðslunni. Þau hittu til dæmis Jónu Rán, forvarnarfulltrúa Hafnarfjarðar og Kára og Andreu, með FOKK ME – FOKK YOU. Þau ræddu um ofbeldi, vímuefni og kynfræðslu. Allt sem hægt er að ímynda sér að komi upp,“ segir Torfi.

Markmiðið að kveikja umræðu

Torfi var sjálfur í jafningjafræðslunni í Reykjavík og hefur yddað fyrirkomulagið hér í Hafnarfirði að því sem þar er. „Ég fékk frelsi til að ráða fyrirkomulaginu.“ Torfi segir að markmið Jafningjafræðslunnar að hefja umræðu um ákveðin málefni.

„Þau ræða svo það sem ungmennin í Vinnuskólanum hafa áhuga á. Ungmennin ráða ferðinni á meðan þau í Jafningjafræðslunni brjóta ísinn með því til dæmis að fara í fræðsluleiki, segja fram staðhæfingu sem krakkarnir eru svo sammála eða ósammála.“ Þá svari þau nafnlausum spurningum.

„Hugmyndin á bakvið Jafningafræðsluna er að krakkar í menntaskóla eru meira tengd raunveruleika krakka í efstu bekkjum grunnskóla en við sem eldri erum,“ segir hann en sjálfur er Torfi að verða 24 ára.

„Já, þau eru nær þeim í aldri og eiga að þekkja raunveruleika þessara ungmenna. Þannig er léttara fyrir þau að treysta og búa til öruggt umhverfi þar sem þau geta tjáð sig um það sem liggur þeim á hjarta.“

Starfa í teymi og ferðast milli hópanna

Þrjár vikur eru eftir af Vinnuskóla Hafnarfjarðar með þessari talið. Fimm hópar að jafnaði starfa í hverjum skóla og þrettán til sautján í hverjum hópi. Jafningafræðslan vinnur í þriggja til fjögurra manna teymum sem ferðast milli hópanna.  En hvernig mál koma upp?

„Það er mismunandi, en krakkar eru forvitnir um allskonar málefni,“ segir Torfi. „Þau eru forvitin um kynfræðslu, ofbeldi og stafrænt ofbeldi. Líka fordóma. En þau ræða líka menntaskóla og annað sem skiptir þau máli,“ segir Torfi.

Auglýst var eftir krökkunum. Þau fóru í viðtöl og voru svo valin til starfa í Jafningjafræðslunni. „Það er mikilvægt að hópurinn sé fjölbreyttur og geymi ólíkar týpur svo þau geti tengt við ólíka hópa,“ segir Torfi. Og er þetta skemmtilegt.

„Já, algjörlega. En þetta er fyrst og fremst afar mikilvægt starf.“

Ábendingagátt