Götulokanir við Víðistaðatún á almyrkvadeginum 12. ágúst
Götulokanir snerta Hraunbrún, Hellisgötu og Garðaveg á almyrkvadeginum 12. ágúst. Endilega skoðaðu kortið og sjáðu. Íbúar fá sérmeðferð.
Götulokanir í Hafnarfirði
Hafnarfjörður trekkir að miðvikudaginn 12. ágúst, á almyrkvadeginum. Búist er við sjö þúsund gestum á tónlistarhátíðina Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu sem haldin verður á Víðistaðatúni. Búast má við fyrstu gestum um hádegisbilið á túnið, en þá opnar svæðið.
Fjöldinn kallar á götulokanir við Víðistaðatún. Hér má sjá hvar lokanirnar verða:
Nánari upplýsingar fyrir íbúa um viðburðinn er að finna hér á síðu Garcia Events, sem heldur þessa einstöku tónlistarhátíð.
- Umferð um Hraunbrún verður lokuð fyrir almenna umferð en íbúum við Hraunbrún verður leyft að aka til og frá heimili sínum.
- Hraunbrún verður alveg lokuð við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Ekki verður hægt að keyra þar í gegn.
- Þeir íbúar sem búa á Hraunbrún verða að koma frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut til að keyra inn Hraunbrún. Ekki verður hægt að keyra inn á Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi.
- Frá 11:00 – 15:00 og 20:00-23:00 verður umferð stýrt um Hjallabraut og skert aðgengi um hana á meðan.
Já, við gerum þetta saman og búum til einstaka upplifun!