Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut

Framkvæmdir Tilkynningar

Vegna vegaframkvæmda (fræsing og malbikun) verða eftirfarandi svæði á/við Reykjanesbrautina lokuð þann 25.júní til 26.júní, ef veður leyfir.

Nánar:

„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir fimmtudaginn 25. júní og aðfaranótt 26. júní.

„Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut – Hringtorg við Lækjargötu (viðhengi 8.0.9). Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl. 20:00 til kl. 07:00 aðfaranótt 26. júní.“

„Þrengt verður í eina akrein samkvæmt teikningu 5.1.2.2 á Reykjanesbraut við Ásvelli og veginum verður síðan lokað í framhaldinu. Einnig verður lokað inn á Reykjanesbraut frá Kaldárselsvegi. Hjáleið verður um Strandgötu, Fjarðargötu og Reykjavíkurveg.“

„Malbikun á Reykjanesbreut – Kaplakriki / Sólvangur (viðhengi). Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl. 20:00 til kl. 07:00 aðfaranótt 26. júní. Kaflinn er 750m langur.“

„Reykjanesbraut verður lokað á milli Kaplakrika og Lækjargötu ásamt lækjargötu að hringtorgi. Hjáleið verður um Strandgötu, Fjarðargötu og Reykjavíkurveg.“

„Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Vegfarendur eru því beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.“

Sjá yfirlitsmynd 1.

Sjá yfirlitsmynd 2.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt