Ævintýrið er á bókasafninu –  Á Heimum og himingeimum

Fréttir

Nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar fylltist af litríkum persónum, ævintýrum og gestum á öllum aldri á fyrsta degi búninga- og leikjahátíðarinnar Heima og Himingeima. Hátíðin stendur til kl. 18 í dag og frá 12-18 á morgun.

Heimar og himingeimar 2026

Búninga- og leikjahátíðarin Heimar og himingeimar stendur nú sem hæst. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga, 4.–6. september, og í ár eru í boði um þrjátíu smiðjur og fimm ólíkir heimar. Þar mætast meðal annars kvikmyndabúningar, fantasíulörp, söguleg endursköpun, japanskt cosplay, leikmunagerð og skylmingar.

Á dagskránni yfir helgina eru meðal annars geislasverðaþjálfun, brynjugerð, föndur, tónleikar, ljósmyndabásar, leikir og sýningar, dans, rúnaílestur, búningagerð og ýmislegt fleira.

Hátíðin er haldin í þriðja sinn í ár. Um 5.000 gestir sóttu hana fyrsta árið og í fyrra tvöfaldaðist gestafjöldinn þegar um 10.000 manns lögðu leið sína á Heima og himingeima.

Og við erum bara rétt að byrja!

Ævintýraheimarnir halda áfram að taka á móti gestum í dag laugardag og sunnudag. Það er því nóg eftir fyrir þau sem misstu af fyrsta deginum – og ekki síður þau sem komu og vilja meira.

Heimar og himingeimar eru hátíð fyrir öll sem hafa gaman af búningum, leikjum, sköpun og ævintýrum – hvort sem fólk kemur í fullum skrúða eða bara eins og það er.

Komdu inn í heimana með okkur – ævintýrið heldur áfram alla helgina í Hafnarfirði.

Ábendingagátt