Helgin: Litlar táslur, ljúfir tónar og stórtónleikar
Litlar táslur, stór tónlistarupplifun eða busl í sundi. Margt er í boði í Hafnarfirði um helgina 16.–18. október. Hér er brot af því besta.
Já, hér getur fjölskyldan notið helgarinnar
Það verður pláss fyrir bæði litlar táslur og stóra tónlistarupplifun í Hafnarfirði um helgina. Foreldrar geta kynnt sér ungbarnanudd, tónlistarunnendur skellt sér á tónleika og fjölskyldur notið samveru á söfnunum og í sundi. Hér er brot af því sem er í boði helgina 16.–18. október.
Notaleg stund fyrir yngstu bæjarbúana
Litlir fætur og mjúkar strokur verða í aðalhlutverki á Bókasafni Hafnarfjarðar laugardaginn 17. október kl. 13–14. Þá leiðir Hafdís Ósk Jónsdóttir fræðslustund um ungbarnanudd fyrir foreldra með börn frá fæðingu að skriðaldri.
Fjallað verður um snertingu, tengsl og hvernig laga má nuddstundina að þörfum barnsins. Einnig verður stutt sýnikennsla og hægt að æfa sig á nudddúkkum ef litlu gestirnir kjósa frekar að sofa eða fylgjast með.
Á laugardaginn hittist líka animeklúbbur bókasafnsins fyrir 14–16 ára kl. 15–17. Bókasafnið er opið kl. 11–17 bæði laugardag og sunnudag og því tilvalið að koma við, finna góða bók og eiga rólega stund saman.
Brasilískir tónar og myndlist í Hafnarborg
Helgin hefst á ljúfum nótum í Hafnarborg föstudaginn 16. október kl. 18 þegar Kjalar Kollmar kemur fram á Síðdegistónum ásamt Andrési Þór, Birgi Steini Theodórssyni og Matthíasi Hemstock. Yfirskriftin er „Heimsókn til Brasilíu“ og aðgangur er ókeypis.
Í Hafnarborg standa einnig yfir sýningarnar spássían, haustsýning safnsins, og Bjarmaband eftir Frosta Fjalar. Safnið er opið kl. 12–17 báða helgardagana og ókeypis inn.
Ný sýning í Litla Gallerý
Sýningin Iðuhvolf eftir Victor G. Cilia er nýopnuð í Litla Gallerý. Þar mætast lífræn form, litir og flæði í verkum sem sækja innblástur í iðuhvolf sólarinnar. Opið er föstudag kl. 14–18, laugardag kl. 13–17 og sunnudag kl. 14–17.
Hlátur í Bæjarbíó og stórtónleikar í Kaplakrika
Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns stíga á svið í Bæjarbíó föstudagskvöldið 16. október kl. 19 með sýninguna Bíddu bara – ÞETTA REDDAST. Þar blandast saman sketsar, uppistand og frumsamin lög um lífið og allt sem því fylgir.
Á laugardagskvöldið 17. október kl. 20 heldur Of Monsters and Men stórtónleika í Kaplakrika sem eru hluti af tónleikaferðinni The Mouse Parade Tour.
Ferðalag aftur í tímann
Byggðasafn Hafnarfjarðar tekur á móti gestum kl. 11–17 bæði laugardag og sunnudag. Í Pakkhúsinu má kynnast sögu bæjarins, skoða leikföng frá fyrri tíð og sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður. Sívertsens-hús og Beggubúð eru einnig opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis.
Sundsprettur og samvera
Sundferð er alltaf góð helgarhugmynd, hvort sem hugurinn stefnir á nokkrar ferðir í lauginni eða notalegt spjall í heita pottinum. Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug eru opnar kl. 8–18 á laugardag. Á sunnudag er Ásvallalaug opin kl. 8–17 og Suðurbæjarlaug kl. 8–21.
Og hvað er fram undan í næstu viku?
Það verður líka líf í bænum í næstu viku. Á Bókasafni Hafnarfjarðar verður:
- Mánudagsföndur 19. október kl. 16–18
- Kit/Cosplay: Sauma- og hönnunarsmiðja þriðjudaginn 20. október kl. 17–18.45
- Opni leikskóli Memmm tekur á móti fjölskyldum á mánudag kl. 12–14
- Íslenska á bókasafni Hafnarfjarðar fyrir öll sem vilja æfa sig í íslensku, kl. 13
- Síðan, bókaklúbbur fyrir 16-25 ára, 20. otóber kl. 17:30
Já, það er bara svo svakalega gott að búa í Hafnarfirði.