Fjöldi flottra verka fá menningarstyrk

Fréttir

Fjögur verkefni hljóta samtals 1.650.000 krónur í seinni úthlutun menningarstyrkja Hafnarfjarðarbæjar árið 2026. Jafnframt er gerður þriggja ára samstarfssamningur við Björn Thoroddsen vegna Gítarveislu Bjössa Thor.

Seinni úthlutun menningarstyrkja þetta árið

Fjögur verkefni hlutu samtals 1.650.000 krónur í seinni úthlutun menningarstyrkja Hafnarfjarðarbæjar þetta árið. Afhendingin fór fram í Friðrikssal í Bókasafninu nú rétt í þessu. Jafnframt hefur verið gerður þriggja ára samstarfssamningur við Björn Thoroddsen vegna Gítarveislu Bjössa Thor.

Menningarstyrkir Hafnarfjarðarbæjar styðja við fjölbreytt menningarlíf og verkefni sem auðga listalíf bæjarins. Að þessu sinni hljóta fjögur verkefni styrk, allt frá Áramótatónum til viðburðadagskrár FLUMBRU.

„Menningarlífið okkar er sterkt og fjölbreytt. Það er fyrst og fremst vegna fólksins sem leggur í það tíma, vinnu og hugmyndir,“ sagði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður menningar og ferðamálanefndar við úthlutunina í dag. Sérstaklega gaman væri að úthluta í fyrsta sinn úr Kórsjóði Hafnarfjarðar. Þrennir kórar fengu styrk: Gaflarakórinn – Kór félags eldri borgara, Karlakórinn Þrestir og Barbörukórinn.

„Kórarnir okkar setja sterkan svip á bæjarlífið. Þeir koma fram á tónleikum, hátíðum og við alls konar tilefni og halda lifandi sönghefð sem hefur fylgt okkur lengi. Á bak við hverja tónleika eru reglulegar æfingar, mikil vinna og fólk sem mætir viku eftir viku.“

Hún þakkaði þeim öllum fyrir framlag sitt til hafnfirskra menningarmála.

„Takk fyrir frumkvæðið, vinnuna og fyrir að gera menningarlífið í Hafnarfirði betra og fjölbreyttara.“

Þessi hljóta styrk í haustúthlutun menningarstyrkja 2026:

  • Helga Diljá Jörundsdóttir og Tómas Vigur Magnússon, Áramótatónar, 400.000 kr.
  • Anja Amelia Miriam Sverrisson, Rauðir þræðir, 250.000 kr.
  • Lárus Jón Guðmundsson, FLUMBRA viðburðadagskrá, 400.000 kr.
  • Ólafur Guðlaugsson, Blús & – tónlist á aðventu, 600.000 kr.

Samtals nema styrkirnir 1.650.000 krónum.

Þriggja ára samstarf um Gítarveislu Bjössa Thor

Auk menningarstyrkjanna hefur verið gerður þriggja ára samstarfssamningur við Björn Thoroddsen vegna Gítarveislu Bjössa Thor. Fjárhæð vegna samstarfsins við þessa úthlutun er 1.000.000 króna á ári, samtals þrjár milljónir árin þrjú.

Já, hér í Hafnarfirði blómstrar menningin. Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju!

Ábendingagátt