Fallið frá áformum um tímabundna íbúðabyggð við Krýsuvíkurveg

Fréttir

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að falla frá áformum um uppbyggingu íbúða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Ákvörðunin er tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmiðum sem fram hafa komið í samtali við íbúa. Meirihlutinn er samstíga í þessari ákvörðun.

Hugmyndinni um uppbyggingu tímabundins íbúðarhúsnæðis var ætlað að mæta mikilvægri þörf fyrir öruggt og vandað húsnæði fyrir fólk sem starfar til skemmri tíma hér á landi og m.a. draga úr þenslu á húsnæðismarkaði. Frá því að verkefnið var kynnt hafa komið fram ábendingar og andstaða við fyrirhugaða uppbyggingu, m.a. á íbúafundi sem haldinn var að frumkvæði bæjarins.

„Við töldum þetta metnaðarfulla og áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Við höfum hins vegar farið yfir forsendur verkefnisins í ljósi þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið, meðal annars á íbúafundi sem við héldum um málið. Niðurstaða okkar er sú að rétt sé að falla frá áformunum. Það er eðlilegur hluti af ábyrgri ákvarðanatöku að endurmeta verkefni þegar aðstæður kalla á það,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.

Þörfin enn til staðar

Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að sú þörf sem verkefninu var ætlað að mæta sé enn til staðar og óleyst. Það er vel þekkt að of margir búa við þröngan kost í óleyfilegu húsnæði sem uppfyllir ekki kröfur um öryggi og aðbúnað. Slíkar aðstæður eru óásættanlegar og mikilvægt að leita áfram leiða til úrbóta. Mikilvægt er að sveitarfélög hefji samtal um það hvernig hægt sé að leysa þennan vanda.

Ábendingagátt