Skipulags- og byggingarfulltrúi

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 11.09.2026

Umsóknarfrestur til: 24.09.2026

Vilt þú taka þátt í að móta framtíð Hafnarfjarðar?

Hafnarfjarðarbær leitar að öflugum, metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi í starf skipulags- og byggingarfulltrúa. Um er að ræða lykilstjórnendastarf fyrir einstakling sem vill taka þátt í þróun bæjarins, að byggja upp áframhaldandi góða þjónustu og vinna að því með öflugu teymi að Hafnarfjörður verði áfram lifandi, fallegur og framúrskarandi bær fyrir bæjarbúa, atvinnulíf og gesti. Við leitum að leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á skipulags- og byggingarmálum, góða yfirsýn, skýra þjónustuhugsun og metnað til að taka þátt í að þróa starfsemi sem er fagleg, skilvirk og í fremstu röð. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og einstaklega spennandi fyrir þann sem vill leiða öflugt teymi sérfræðinga og taka þátt í stórum ákvörðunum sem snerta daglegt líf fólks og framtíðarsýn samfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða og bera ábyrgð á starfsemi skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa
  • Stýra stefnumótun, þróun og innleiðingu nýrra áherslna í skipulags- og byggingarmálum
  • Tryggja fagleg vinnubrögð, góða stjórnsýslu og þjónustu sem er til fyrirmyndar
  • Leiða öflugt teymi sérfræðinga og byggja upp öfluga liðsheild
  • Vinna að gerð aðal- og deiliskipulagsáætlana, þróun byggðar og faglegri meðferð skipulags- og byggingarmála
  • Veita ráðgjöf, leiðbeiningar og upplýsingar til íbúa, kjörinna fulltrúa, fagaðila og annarra hagsmunaaðila
  • Hafa yfirsýn yfir byggingarleyfisumsóknir, byggingareftirlit, úttektir og aðra mikilvæga þætti málaflokksins

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
  • Reynsla af starfi skipulagsfulltrúa og af starfi byggingarfulltrúa
  • Farsæl stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum
  • Farsæl reynsla af því að leiða teymi, efla samstarf og virkja fólk til árangurs
  • Leiðtogahæfileikar, drifkraftur og metnaður til að ná árangri
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Góð þekking á skipulags- og mannvirkjalögum og starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu
  • Reynsla af skipulagsáætlunum ásamt kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð
  • Reynsla af yfirferð aðaluppdrátta
  • Reynsla og þekking af að framkvæma lokaúttektir
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Mjög góð tölvukunnátta

Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Þar bíður þín tækifæri til að sinna einu af mikilvægustu störfum sveitarfélagsins. Þú færð að vinna með öflugu fólki, taka þátt í krefjandi og fjölbreyttum verkefnum og leggja þitt af mörkum við að þróa þjónustu sem er hlýleg, áreiðanleg og snjöll. Hjá Hafnarfjarðarbæ er mikill metnaður til að gera vel, hugsa til framtíðar og halda áfram að byggja upp frábæran bæ þar sem bæjarbúar njóta framúrskarandi þjónustu og góðra lífsgæða.

Ef þú vilt taka þátt í að leiða, hafa áhrif og taka þátt í spennandi uppbyggingu Hafnarfjarðar, hvetjum við þig til að sækja um.

Umsókn þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfinu.

Um er að ræða ábyrgðarmikið stjórnendastarf og taka starfskjör mið af umfangi og ábyrgð starfsins. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að hafa samband til að fá nánari upplýsingar um starfið og starfskjör. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs (sigurdurh@hafnarfjordur.is) 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf