Gaflaraleikhúsið kynnir:

Fjölskyldu jólatónleikar Gunna og Felix 2026 – MIÐASALA 

Gunnar Helgason og Felix Bergsson eða Gunni og Felix eru meðal vinsælustu skemmtikrafta þjóðarinnar eftir rúmlega 30 ára samstarf. Og nú er komið að því að draga fjölskyldur þeirra félaga inn í stuðið og blása til FJÖLSKYLDU JÓLATÓNLEIKA í Hafnarfirði þann 19. desember 2026.

Fjölskyldujólatónleikar Gunna og Felix ásamt öllum börnum og barnabörnum Gunna og Felix
Kór Setbergsskóla
Hljómsveit Pálma Sigurhjartarsonar

Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju 19 desember 2026

Tónleikarnir eru klukkutími að lengd og það er tilvalið að fara í Jólaþorpið á undan eða eftir. PS. Tveggja ára og yngri fá frítt inn ef það er setið undir þeim.

 

Ábendingagátt