Sýningardagskrá LG 2026 í Jólabænum Hafnarfirði
Það verður nóg um að vera í miðbæ Hafnarfjarðar í nóvember og desember. Samhliða stemningunni í Jólaþorpinu býður Litla gallerí…
Jólaþorpið með fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsunum eru fyrir löngu orðið landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Já, þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan fjölskyldan nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan.
Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið
————————————————————–
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 13. nóvember.
Föstudaga frá kl. 17-20
Laugardaga frá kl. 13-20
Sunnudaga frá kl. 13-18
Helliskaffi í Hellisgerði er opið miðvikudaga til sunnudaga til jóla.
Ævintýraleg fjölskyldusýning á Bókasafni Hafnarfjarðar, innblásin af íslenskum álfasögum, þar sem bækur lifna við, frumsamin tónlist ómar og hafið geymir dularfullt leyndarmál. Miðasala á midix.is
Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum í takt við opnun Jólaþorpsins.
Kl. 20 á Bókasafni Hafnarfjarðar – Kynstrin öll
Kl. 9-11 Syngjandi jól í Hafnarborg
Kl. 13 – 15 Jólagleði á Bókasafni Hafnarfjarðar
Kl. 15 – 17 – Jólin á Byggðasafninu. Jólaföndur fyrir alla fjölskylduna í Pakkhúsi Byggðasafnsins.
Fjórir kórar stíga á stokk í Jólaþorpinu í dag.
Kl. 14:30 – Mosfellskórinn
Kl. 15 – Kór Öldutúnsskóla og litli kór Öldutúnsskóla
Kl. 15:30 Kvennakór Hafnarfjarðar
Kl. 16 – Karlakórinn Þrestir
Kl. 14:15 Bókaálfarnir Una og Snotra taka nokkur lög í Jólaþorpinu
Kl. 15 Söngstund með Sveinka í Jólaþorpinu
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !