Hafnarvörður – Hafnarfjarðarhöfn

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 12.10.2026

Umsóknarfrestur til: 25.10.2026

Tengiliður: Lúðvík Geirsson

Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða hafnarvörð til starfa. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hafnarfjarðarhöfn er með starfsemi bæði í Hafnarfirði og Straumsvík. Daglegur vinnutími er frá 07.30 – 15.30 virka daga, auk þess sem unnið er á kvöld- og helgarvöktum.

Helstu verkefni:

·        Almenn störf við móttöku skipa og þjónustu við þau

·        Vigtun á bílvog og pallvogum

·        Aðstoð um borð í hafnsögu- og dráttarbátum

·        Viðhald og umhirða á hafnarbökkum

·        Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

·        Reynsla af hafnarstörfum eða sjómennsku

·        Námskeið frá Slysvarnarskóla sjómanna skilyrði*

·        Vigtarréttindi skilyrði*

·        Almenn ökuréttindi skilyrði og meirapróf (C) æskilegt

·        Önnur menntun sem nýtist í starfi.

·        Góð íslensku- og enskukunnátta

·        Almenn góð tölvukunnátta

·        Samskipta- og samstarfshæfni og þjónustulund

·        Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.

Gerð er krafa um að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í síma 414-2300.

Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2026.

*Ef viðkomandi hefur ekki lokið námskeiði hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða hefur ekki vigtarréttindi, en uppfyllir að öðru leyti allar kröfur starfsins, er hægt að senda hann á námskeið áður en hann hefur störf

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

Önnur störf