Sérfræðingur í fjárreiðudeild

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 14.10.2026

Umsóknarfrestur til: 28.10.2026

Tengiliður: Þórey Hallbergsdóttir

Sérfræðingur óskast í fullt starf í fjárreiðudeild hjá Hafnarfjarðarbæ. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í spennandi, krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi.

Í fjárreiðudeild vinna nú tveir starfsmenn auk deildarstjóra. Fjárreiðudeild er ein fjögurra deilda inn á fjármálasviði, hinar eru hagdeild, reikningshalds- og uppgjörsdeild og innkaupadeild. Á fjármálasviði starfa 15 starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og fyrirsvar vegna þjónustugjalda Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækja bæjarins
  • Umsjón og yfirferð skráninga frístundagjalda
  • Umsjón og eftirlit með kröfum í milli- og löginnheimtu
  • Utanumhald og eftirlit með greiðslulausnum bæjarins
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna
  • Vinna við umbætur í rekstri og sjálfvirknivæðingu
  • Úrvinnsla tölfræðilegra gagna og skýrslugerð
  • Sinnir gjaldkerastörfum í fjarveru deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunnháskólamenntun (BS/BA) í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegt nám
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Þekking á fjárhagskerfi er skilyrði
  • Reynsla af Business Central (Navision) er æskileg
  • Góð tölvukunnátta, þ.m.t. kunnátta í Word, Excel, Power BI og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Þekking og áhugi á stafrænni þróunarvinnu er æskileg
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Nákvæmni í vinnubrögðum og tölugleggni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

 Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórey Hallbergsdóttir, deildarstjóri fjárreiðudeildar, thoreyh@hafnarfjordur.is  

Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga.

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026.

Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf