Horft til framtíðar – hafnfirskt atvinnulíf 2035

Fréttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir hugmyndum og sjónarmiðum íbúa og atvinnulífs við mótun atvinnustefnu Hafnarfjarðar 2027–2035. Hvar liggja helstu tækifærin og hvað ætti bærinn að setja í forgang? Atvinnulíf snertir daglegt líf okkar allra; störfin, verslun og þjónustu, miðbæinn, hverfin, hafnarsvæðið og menninguna. Nú gefst íbúum, fyrirtækjaeigendum og starfsfólki fyrirtækja tækifæri til að leggja sitt af mörkum með því að svara stuttri könnun.

Hvernig viljum við sjá atvinnulíf í Hafnarfirði árið 2035?

Hafnarfjarðarbær óskar eftir hugmyndum og sjónarmiðum íbúa og atvinnulífs við mótun atvinnustefnu Hafnarfjarðar 2027–2035. Hvar liggja helstu tækifærin og hvað ætti bærinn að setja í forgang? Atvinnulíf snertir daglegt líf okkar allra; störfin, verslun og þjónustu, miðbæinn, hverfin, hafnarsvæðið og menninguna. Nú gefst íbúum, fyrirtækjaeigendum og starfsfólki fyrirtækja tækifæri til að leggja sitt af mörkum með því að svara stuttri könnun.

Sameiginleg sýn á framtíð atvinnulífsins

Með mótun atvinnustefnunnar er horft til þess hvernig Hafnarfjarðarbær getur skapað góð skilyrði fyrir öflugt, fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf. Í vinnunni er meðal annars fjallað um þjónustu við fyrirtæki, atvinnusvæði, innviði, nýsköpun og samstarf. Markmiðið er að styrkja Hafnarfjörð sem stað til að stofna, reka og þróa fyrirtæki og skapa fjölbreytt störf til framtíðar.

Þín reynsla og þínar hugmyndir skipta máli

Í könnuninni er spurt um styrkleika atvinnulífs í Hafnarfirði, tækifæri til eflingar og þau viðfangsefni sem brýnast er að sinna. Fyrirtæki geta jafnframt komið á framfæri helstu áskorunum í rekstri og bent á hvað bærinn gæti gert betur til að bæta starfsumhverfi þeirra. Svörin verða nýtt við mótun atvinnustefnunnar og við að greina áherslur og forgangsmál til næstu ára.

Taktu þátt og hjálpaðu okkur að móta framtíð hafnfirsks atvinnulífs. Það tekur um 3–5 mínútur að svara könnuninni.

Taktu þátt

Ábendingagátt