Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.10.2026

Umsóknarfrestur til: 10.11.2026

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í 70-80% starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð. 

Fjölbreytt og spennandi starf þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að þjónustunotendum líði sem best.

Um er að ræða 70-80% starf og verður viðkomandi að geta unnið kvöldvaktir, næturvaktir og aðra hvora helgi. Okkur vantar starfsmann sem hafið getur störf í janúar.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu 
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Framtakssemi og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ólafsdóttir, Forstöðumaður í síma: 565-5344, netfang: kristino@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2026 

Með umsókn þarf að fylgja greinargóð ferilskrá .

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf