Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun – Berjahlíð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.10.2026

Umsóknarfrestur til: 13.11.2026

Tengiliður: Kristín Anna Th. Jensdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf í sólarhingsþjónustu við fatlað fólk með búsetu í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.  

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsfólki í hlutastarf.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum  
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Kristín Anna Th. Jensdóttir, forstöðukona í síma: 664-5716, netfang: kristinj@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf