Miðstöðin pakkar fyrir Ávaxtabílinn tvisvar í viku

Fréttir

Afslappað andrúmsloft og iðinn mannskapur vann verk sitt faglega í Miðstöðinni nú í morgun. Pökkun fyrir Ávaxtabílinn stóð sem hæst, eins og aðra mánudaga.

Miðstöðin hefur eflst á nýjum stað

Afslappað andrúmsloft og iðinn mannskapur vann verk sitt faglega í Miðstöðinni nú í morgun. Þau unnu að því að afgreiða pantanir fyrir Ávaxtabílinn eins og alla mánudagsmorgna – Já, og miðvikudaga.

„Ávaxtabíllinn þarf fólk sem gerir þetta samviskusamlega. Það þarf að hugsa og vera með hugann við verkið. Mér var bent á Miðstöðina. Það hefur heldur betur gengið upp. Stýrurnar eru góðar, svo er fólkið með fókus á því hvað það er að gera og metnað til að gera þetta vel,“ segir Haukur Magnússon, framkvæmdastjóri Ávaxtabílsins.

Starfa fyrir fyrirtæki

Miðstöð vinnu og virkni er staðsett á Suðurgötu og Selhellu hér í Hafnarfirði. Hún veitir fötluðum einstaklingum stuðning til að þróa styrkleika sína sem stuðlar að aukinni þátttöku í daglegu lífi, atvinnu og samfélaginu til jafns við aðra.

Fjórar deildir eru á Miðstöðinni.

  • Miðstöð félags- og líkamlegrar virkni
  • Miðstöð óhefðbundna tjáskipta
  • Miðstöð skynörvunar
  • Miðstöð umhverfisvaktar – lögð er áhersla á atvinnuþjálfun og þátttöku fólks

Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir öllum verkefnum fagnað í Miðstöðinni. „Bæði í húsi og úr húsi.“ Miðstöðin vinni þessa dagana einnig fyrir Enso, The Icelandic Store og Hafnarfjarðarbæ.

„Samstarfsfyrirtækjum fjölgar enda hefur Miðstöðin vakið mikla athygli.“ Eftirspurnin eftir að starfa á Miðstöðinni hafi einnig aukist og myndast hefur biðlisti. Miðstöðin er ársgömul í þessari mynd. Ár er síðan húsnæðið að Selhellu var tekið í notkun.

„Við höfum komið okkur vel fyrir. Við erum tilbúin í fleiri verkefni og fleiri launuð störf fyrir þau, því það skiptir þau máli. Það er alveg ljóst að þetta húsnæði hefur verið lyftistöng fyrir starfsemina.“

Ávaxtabíllinn í 22 ár

Ávaxtabíllinn dreifir ávöxtum og grænmeti til fyrirtækja og vinnur undir því skemmtilega slagorði Ávaxtaðu betur. Fyrirtækið er 22 ára gamalt.

Haukur segir þrjá bíla keyra út á mánudagsmorgnum frá Miðstöðinni. Bílstjórarnir taki við pökkun eftir því sem verkið vinnist. 10 –15 manns vinni að pökkuninni hverju sinni.

„Fólk fær launaseðla og hefur sín réttindi. Mér líður afskaplega vel með þetta samstarf enda þjónustulundin mikil og ég finn að þeim þykir mjög vænt um verkefnið. Þetta er win-win og ég mæli með Miðstöðinni,“ segir Haukur.

Ábendingagátt