Dagur íslenskrar tungu er í dag

Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin fagnar tímamótum. Hún á 30 ára afmæli. Litla upplestrarkeppnin heldur svo upp á 16 ára afmæli í dag. Þessar keppnir halda því báðar upp á afmæli á degi íslenskrar tungu í dag 16. nóvember.

Upplestrarkeppnirnar eiga afmæli í dag

Stóra upplestrarkeppnin fagnar tímamótum. Hún á 30 ára afmæli. Litla upplestrarkeppnin heldur svo upp á 16 ára afmæli í dag. Þessar keppnir halda því báðar upp á afmæli á Degi íslenskrar tungu í dag 16. nóvember.

Bæði verkefnin eiga rætur sínar í Hafnarfirði og hafa síðan breiðst út um land allt. Dagurinn í dag er einmitt setning þessara keppna. Misjafnt er hvernig hafnfirskir skólar útfæra þær en sú litla er fyrir nemendur 4. bekkjar og sú stóra nemendur 7. bekkjar.

Ingibjörg Einarsdóttir var ein af frumkvöðlum keppnanna ásamt Baldri Sigurðssyni og Þórði Helgasyni. Hún hefur verið leiðandi í þróun þeirra og útbreiðslu frá upphafi en stýrði Stóru upplestrarkeppninni í síðasta sinn í mars síðastliðnum, eftir 30 ára starf. Ingibjörg var sæmd fálkaorðunni árið 2013 fyrir framlag sitt til eflingar lestrarkunnáttu barna.

Ingibjörg rifjar upp sögu verkefnanna á tilefni tímamótanna í grein sem hún hefur ritað.

 

Til hamingju með dag íslenskrar tungu

Nú eru liðin 30 ár síðan 16. nóvember var útnefndur sem þessi merkilegi hátíðisdagur.  Sama haust tóku sveitarfélögin við rekstri grunnskólanna og er óhætt að segja að það fylgdi því bæði eftirvænting og smá kvíði. Þá líkt og nú voru margir með áhyggjur af stöðu íslenskunnar og því vaknaði sú hugmynd að nota þessi tímamót til að vekja sérstaka athygli á töluðu máli. Baldur Sigurðsson, Þórður Helgason og undirrituð höfðu öll kennt framsögn á námskeiðum fyrir kennara í nokkuð mörg ár og ákváðu nú að koma á spennandi verkefni í grunnskólunum.  Hafnarfjörður varð fyrir valinu og ákveðið var að hefja leikinn með kennurum í 7. bekk.

Verkefnið fór formlega af stað á degi íslenskrar tungu. Kennarar fengu leiðsögn allan tímann og ákveðið var að allir skólar myndu senda fulltrúa skólans á lokahátíð þar sem ákveðið lesefni væri flutt, bæði textar og ljóð. Hátíðin var haldin í Hafnarborg og þangað mætti ráðherra menntamála sem þá var Björn Bjarnason.  Það má segja að það hafi orðið verkefninu til lífs að Björn heillaðist af því og ákvað að styrkja verkefnið svo það gæti haldið áfram.

En hvern hefði órað fyrir því að viðtökur við þessu litla tilraunaverkefni yrðu með þeim hætti að eftir fimm ár var verkefnið orðið fastur liður í skólastarfi allra nemenda í 7. bekkjum á landinu.  Félagið Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, var stofnað utan um verkefnið. Í 25 ár sá félagið um reksturinn og alla umsjón með því.  Í því fólst meðal annars að velja lestexta, útvega verðlaun og fleira og fleira.  Hvert ár var valinn texti úr bók eftir einn barnabókahöfund og eitt ljóðskáld.  Félag íslenskra bókaútgefenda sá um sérprentun ljóðabóka eftir ljóðskáld keppninnar.

Fyrstu tíu árin var formaður dómnefndar á hverjum stað ávallt frá Röddum.  Fljótlega fékk verkefnið svo nafnið Stóra upplestrarkeppnin sem allir þekkja nú. Baldur Sigurðsson tók saman handbók og þar var í raun hægt að fletta upp á öllu sem máli skipti varðandi verkefnið.  Reglurnar voru einfaldar en mjög mikilvægt að allir fylgdu þeim.

Stóra upplestrarkeppnin fór alltaf af stað á degi íslenskrar tungu.  Allur hópurinn var með allt æfingatímabilið og allir fengu viðurkenningarskjal.  Valdir fulltrúar skólanna mættu svo á lokahátíð sem ávallt voru haldnar í mars.

Þetta form hefur gengið alveg frá byrjun og blómstrar enn.  Félagið Raddir sendi „svo barnið að heiman“  þegar keppnin varð 25 ára og er óhætt að segja að nær öll sveitarfélög landsins tóku því fagnandi að taka við verkefninu og reka það áfram af miklum metnaði.

Við frumkvöðlarnir rekumst mjög oft á fólk víðs vegar í samfélaginu sem segir okkur skemmtilegar sögur af því hvað Stóra upplestrarkeppnin hafi gert fyrir það.

Þegar Stóra upplestrarkeppnin varð 15 ára var ákveðið að hleypa af stokkunum næsta tilraunaverkefni og varð fjórði bekkur fyrir valinu. Allir kennarar árgangsins í Hafnarfirði voru tilbúnir til að takast á við þessa tilraun og hófst verkefnið líka á degi íslenskrar tungu.  Verkefnið var sniðið að yngri nemendum, allir í bekknum voru með allt æfingatímabilið og á lokahátíð. Allir fengu viðurkenningarskjal, lesin voru ljóð og textar og tónlist í hávegum höfð.  Verkefnið þróaðist þannig að hátíðirnar eru yfirleitt í fyrstu kennslustund að morgni, foreldrar boðnir og yfirleitt líka nemendur í þriðja bekk.  Þetta eru ávallt miklar sigurhátíðir!  Fljótlega fékk verkefnið nafnið Litla upplestrarkeppnin og hefur breiðst hratt út um allt land.  Á síðasta skólaári tóku rúmlega 3000 nemendur þátt en sveitarfélögin tóku við rekstri þessa verkefnis nú á haustdögum.

Bæði verkefnin hafa átt marga velunnara.  Það væri of langt mál að telja upp alla styrktaraðila en Barnavinafélagið Sumargjöf, Félag íslenskra bókaútgefenda, ráðuneyti menntamála, skólaskrifstofur og sparisjóðir voru okkar sterku stoðir.

Bæði Stóra og Litla upplestrarkeppnin hafa fengið fjölda viðurkenninga og má þar nefna Foreldraverðlaun Heimilis og skóla nokkrum sinnum,  Íslensku menntverðlaunin og viðurkenningar frá Foreldraráði Hafnarfjarðar.

Vefurinn  upplestur.is verður áfram öllum aðgengilegur og þar er að finna allt lesefni fyrri ára og góðar leiðbeiningar fyrir kennara.

Með ósk um að bæði þessi læsisverkefni fái áfram að blómstra í öllum grunnskólum landsins.

F. h. Radda, samtaka um vandaðan

 upplestur og framsögn

Ingibjörg Einarsdóttir, formaður

Dagur íslenskrar tungu

Já, íslenskan er lifandi tungumál sem tekur stöðugum breytingum í takt við samfélagið. Ný orð verða til, önnur hverfa og tungumálið þróast með nýjum kynslóðum, tækni og breyttum lifnaðarháttum.

Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að hlúa að íslenskunni, skapa tækifæri til að nota hana og tryggja að hún eigi áfram sterkan sess í samfélaginu. Þar gegna skólar, menningarstofnanir, vinnustaðir og heimili mikilvægu hlutverki.

Dagur íslenskrar tungu er jafnframt áminning um að tungumálið tilheyrir öllum sem vilja læra það og nota. Með því að hvetja til samskipta á íslensku og styðja þau sem eru að tileinka sér málið stuðlum við að virkri þátttöku og sterkari samfélagslegum tengslum.

Fögnum íslenskunni saman

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1996. Í tilefni dagsins eru árlega veitt verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstök viðurkenning fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.

Hafnarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til að fagna deginum með lestri góðrar bókar, hlusta á íslenska tungu, spjalla og leika sér með tungumálið.

Já, íslenskan lifir og dafnar með okkur öllum.

 

Ábendingagátt