Helgin: Jólaþorpið opnar með söng, ljósadýrð og ævintýrum

Fréttir

Nú er komið að því! Jólabærinn Hafnarfjörður vaknar til lífsins með opnun Jólaþorpsins á Thorsplani kl. 17 í dag. Framundan er helgi full af jólastemningu, tónlist, handverki, kræsingum. Já, Hafnarfjörður heldur utan um fjölskylduna á aðventunni.

Jólaþorpið opnar með tendrun Cuxhaven-trésins

Jólaþorpið opnar kl. 17 á föstudag og klukkan 18 hefst hátíðardagskrá með Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórnum Þröstum. Hápunkturinn verður kl. 18.30 þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu, gjöf frá þýska vinabænum okkar. Uwe Santjer, yfirbæjarstjóri Cuxhaven, tendrar á trénu. Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands, Þórður Þórarinsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og helstu forsvarsmenn vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður–Cuxhaven verða einnig viðstödd tendrunina.

Bókaálfarnir Una og Snotra taka síðan við kl. 18.40 og færa börnum og fullorðnum ævintýri og gleði. Já, þær halda um veislustjórnina á þessu frábæra opnunarkvöldi. Á laugardag kl. 16 mætir Leikhópurinn Lotta með skemmtilega söngvasyrpu í Jólaþorpið.

Jólagjafir, kræsingar og handverk

Fjölbreytt úrval af handverki, hönnun, sælkeravörum og jólagjöfum verður svo í boði í fallegu jólahúsunum á Thorsplani. Hér gefst kjörið tækifæri til að finna eitthvað einstakt í jólapakkann, njóta góðra veitinga og hitta vini og kunningja.

Jólasveinarnir láta sig ekki vanta. Grýla verður líka á vappi um bæinn á sunnudag. Hjartasvellið við Ráðhústorg verður opið, tívolíið við Venusarhúsið á Strandgötu býður upp á skemmtun og í Hellisgerði verður hægt að setjast niður á Helliskaffi og njóta ævintýralegs umhverfis.

Opnunartími Jólaþorpsins

Pólsk menning, tónlist og listir

Pólski dagurinn verður haldinn hátíðlegur á Bókasafni Hafnarfjarðar á sunnudag kl. 13–17. Þar verður pólskri menningu og fjölbreytileika fagnað og gestum boðið að kynnast menningarheimi pólskra vina okkar.

Á föstudag kl. 17 kynnir Elías Rúni grafísku söguna Fyrsta skiptið í viðburðaröðinni Aðdragandinn á bókasafninu. Klukkan 18 sama dag stíga gítarleikararnir Björn Thoroddsen og Andrés Þór á svið á Síðdegistónum í Hafnarborg.

Á laugardag kl. 13–15 bjóða Hafnarborg og GETA til fjöltyngdrar klepon-smiðju þar sem gestir kynnast indónesískri hefð. Animeklúbbur fyrir 14–16 ára verður jafnframt á bókasafninu kl. 15–17.

Nýjar sýningar í Hafnarborg og Litla Gallerý

Tvær nýjar sýningar hafa verið opnaðar í Hafnarborg. Styrmir Örn Guðmundsson sýnir Hugrenningar og Beili Liu sýnir Vatnsins streymi. Tilvalið er að líta við í Hafnarborg og njóta myndlistar samhliða jólaröltinu.

Í Litla Gallerý stendur einnig yfir sýningin Katabasis eftir Heimi Snæ, dagana 12.–15. nóvember.

Safnaferð, sund og notalegt miðbæjarrölt

Byggðasafn Hafnarfjarðar býður upp á ferðalag aftur í tímann. Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð eru opin um helgina kl. 11–17 og aðgangur er ókeypis.

Sundlaugar bæjarins eru líka góður áfangastaður fyrir þau sem vilja byrja daginn á sundsprettinum eða njóta samveru í heitu pottunum. Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug taka vel á móti gestum.

Og svo er auðvitað tilvalið að rölta um miðbæinn, líta inn í verslanir, njóta kaffibolla eða góðrar máltíðar og upplifa jólastemninguna sem nú tekur að færast yfir bæinn.

Teygjum helgina inn í næstu viku

Bókasafn Hafnarfjarðar býður svo á mánudag upp á opna leikskólann Memmm kl. 12–14 og mánudagsföndur kl. 16–18.

Á þriðjudag verður skynjunarleikstundin Pláneta á bókasafninu kl. 14–16, sauma- og hönnunarsmiðjan Kit/Cosplay kl. 17–18.45 og bókaklúbburinn Síðan fyrir 16–25 ára kl. 17.30–18.30 í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn.

Fræðslukvöldin þrjú Við erum þorpið fyrir foreldra unglinga verða svo í næstu viku. Fyrsta kvöldið er þriðjudaginn 17. nóvember þegar Karen Bluth flytur fyrirlesturinn The Power of Being Your Own Best Ally í Flensborgarskóla.

Fimmtudaginn 19. nóvember opnar svo Jólahjarta Hafnarfjarðar, upphitaða tjaldið á bak við Bæjarbíó, þar sem samvera og góð stemning verða í fyrirrúmi á aðventunni.

Við erum jólabærinn Hafnarfjörður! Nú njótum við þess að vera saman, gleðjast og taka á móti jólunum í bænum okkar.

Ábendingagátt