Fjölmenning

Hafnarfjörður tekur vel á móti fólki af erlendum uppruna og hvetur til aukinna þátttöku þeirra.

Fjölmenningarráð

Fjölmenningarráð veitir bæjarstjórn, nefndum og ráðum Hafnarfjarðar ráðgjöf um málefni og hagsmuni bæjarbúa sem eru innflytjendur.

Fjölmenningarráð á að stuðla að upplýsingagjöf og samstarfi Hafnarfjarðarbæjar við hagsmunasamtök hópsins. Ráðið tengir saman fjölmenningar samfélög í Hafnarfirði, tengir Íslendinga og innflytjendur, kemur málefnum innflytjenda á framfæri og stuðlar að friðsamlegu fjölmenningarlegu samfélagi.

Í Fjölmenningarráði eru 5 fulltrúar. Ráðið er samráð bæjarbúa sem eru innflytjendur, hagsmunasamtaka innflytjenda, atvinnulífs og bæjaryfirvalda. Það tekur virkan þátt í allri stefnumörkun sem varðar fjölmenningu.

Fjölmenningarráð

Fjölmenningarráð

Nafn hlutverk Stjórnmálaflokkur
Paula Wiszniewska Aðalmaður Sjálfstæðisflokkur
Kolbrún Magnúsdóttir Aðalmaður Framsókn
Sylwia Baginska Félagasamtök
Laura Cervera Félagasamtök
Aleksandra Julia Wegrzyniak Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar

Varamenn

Nafn hlutverk Stjórnmálaflokkur
Valdimar Aðalsteinsson Varamaður Samfylkingin
Kolbrún K. Róbertsdóttir Varamaður Miðflokkurinn
Jorika Trundova Varamaður
Lisa Marie Maríudóttir Mahmic Varamaður
Stephen James Midgley Varamaður