Fjölmenning
Hafnarfjörður tekur vel á móti fólki af erlendum uppruna og hvetur til virkrar þátttöku þess í samfélaginu.
Viðburðir og hópar
Tónagull býður upp á fjöltyngda tónlistarsmiðju fyrir fjölskyldur með ung börn í samstarfi við Hafnarborg.
Á mínu máli er viðburðadagskrá í Hafnarborg sem unnin er í samstarfi við GETU með það að markmiði að gera starfsemina aðgengilega fyrir fleiri.
Komdu og vertu með í föndurstund alla mánudaga á bókasafninu.
Hafnarfjarðarbær og GETA samtök standa fyrir fjölmenningarlegri matarhátíð á planinu fyrir framan Hafnarborg á þjóðhátíðardaginn.
Hátíðin er vettvangur til að fagna fjölbreytni, kynnast nýjum hefðum og njóta þess sem sameinar okkur. Öll eru hjartanlega velkomin.
Langar þig að hitta aðra foreldra og eiga gott samtal um uppeldi og daglegt líf?
Hæ, langar þig að kíkja við og spjalla?
Uppskera er samvinnuverkefni sem fer fram yfir sumartímann í Hafnarfirði og sameinar grænmetisrækt og samfélagslega þátttöku. Verkefnið er unnið í samstarfi Heilsubæ Hafnarfjarðar og GETU samtaka og beinir sjónum að fjölskyldum með fjölbreyttan bakgrunn.