Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir heldur sýningu í Litla Gallerý Strandgötu 19 í Hafnarfirði þann 15.-18. desember. Yfirskrift sýningarinnar er True colours – Litadýrð í öðru ljósi.

Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir er listljósmyndari og kvikmyndatökumaður búsett í Noregi. TRUE COLOURS er hluti af meistaraverkefni Jónínu í Fine Arts við Den Norske Filmskolen. Árið 2021 vann hún verðlaun og viðurkenningu fyrir tvær myndir úr sýningu TRUE COLOURS í alþjóðlegu ljósmyndakeppninni The International Photography Awards ™ (IPA).

Jónína sérhæfir sig í sjónrænni hönnun og leggur áherslu á samspil ljóss og lita í verkum sínum.

Verkið TRUE COLOURS eru ljósmyndir af íslenskri náttúru teknar með infrarauðri tækni. Með því birtist litadýrð sem sýnir heiminn í öðru ljósi. Jónína tók einnig upp hljóð á hverjum stað þar sem hún myndaði og tónskáldið Arndís Rán Snæþórsdóttir bjó til tónlistarverk út frá þeim hljóðum.

Jónína tekur vel á móti gestum og allir velkomnir!

 

Opnunartímar eru eftirfarandi:

  • fimmtudagur 18:00 -20:00
  • föstudagur    13:00 – 21:00
  • laugardagur   12:00 -18:00
  • sunnudagur   13:00 – 18.00
Ábendingagátt