Skissur // Sigurjón Már Svanbergsson
Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram…
Sýningin „Ethoríó Galleríó“ í Litla Gallerý inniheldur málverk og teikningar í blöndu af Pop-list og Kúbisma. Það er einblínt á fígúratív, íslensk einkenni og menningu, og með húmorinn sem nálgun tekur Ethoríó á ádeilum sem flestir geta tengt sig við. Innblásturinn er sprottinn frá hinum íslenska almenningi og persónulegri reynslu hans af lífinu.
Ethoríó hóf BA nám í myndlist við LHÍ árið 2014 en lauk einu ári þar. Árið 2017 flutti hann til Bretlands þar sem hann hóf nám við Arts University Bournemouth og útskrifaðist þaðan árið 2020 með BA gráðu í myndlist (BA degree in Fine Arts).
Síðan þá hefur hann haldið námskeið og einnig kennt ungum krökkum á höfuðborgarsvæðinu í myndlist. Hann hefur verið virkur listamaður í nær 15 ár. Næstu skref hjá listamanninum er að fara til Svíþjóðar í MA nám í Stokkhólmi.
Ethoríó tekur vel á móti gestum og sérstök sýningaropnun verður 11. maí frá kl: 18:00-20:00 og allir hjartanlega velkomnir.
fimmtudag 18:00-20:00
föstudag 13:00-18:00
laugardag 12:00-17:00
sunnudag 14:00-17:00
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.