Fyrri útisýningarhelgi sumarsins hjá Hundaræktarfélagi Íslands verður haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði, í þetta skipti eru þetta tvær sýningar. Á laugardeginum verður NKU norðurlandasýning og Reykjavík Winner, en á sunnudeginum verður alþjóðlegsýning. Boðið verður upp á keppni ungra sýnenda báða dagana.

Skráning á sýningarnar fór fram út björtustu vonum, en bætt var við dómara í lok skráningar til að koma fleiri að. Á laugardag eru 1040 hundar skráðir ásamt 32 ungum sýnendum og 1030 hundar skráðir á sunnudag ásamt 24 ungum sýnendum. Allir dómhringir byrja kl. 9:00 báða daga og áætlað að úrslit hefjist kl. 15:30 báða daga. Gera má ráð fyrir að þau standi til u.þ.b. kl. 18.

Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundaeigendur, ræktendur og sýnendur. Vinsamlega athugið að ​lausaganga hunda á svæðinu er stranglega bönnuð og skulu allir hundar vera í taumi og á eru þeir alfarið á ábyrgð eigenda sinna.

Nánari upplýsingar um dagskrá, bílastæði og sýningarskrá má nálgast á hrfi.is

Ábendingagátt