Miðvikudaginn 16. ágúst kl. 20 mun myndlistarmaðurinn Lukas Bury leiða göngu á pólsku um alþjóðlega höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni, sem komið var á fót árið 1991 með Listahátíð í Hafnarfirði. Voru mörg verkanna á túninu enn fremur unnin í alþjóðlegri vinnustofu myndhöggvara sem haldin var í tengslum við hátíðina 1991 og svo aftur 1993. Þá mynda verkin jafnframt stóran hluta útilistaverkasafns Hafnarborgar og Hafnarfjarðarbæjar. Gengið verður frá Víðistaðakirkju.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt