Mikill afli en lítið um furðulega fiska á Flensborgarhöfn
Það vantaði ekki lífið og fjörið á Flensborgarhöfn í Hafnarfirði í gær þegar hátt í 350 dorgveiðimenn á aldrinum 6-12 ára munduðu veiðarfærin og kepptust við að veiða sem flesta, stærsta og furðulegasta fiska. Fjögur börn fengu sérstök verðlaun og viðurkenningu fyrir frammistöðu sína með veiðarfærin og að sjálfsögðu voru verðlaunin þess eðlis að ýta undir enn fræknari frammistöðu í fiskveiðum.
Fjögur börn fengu sérstaka viðurkenningu
Það vantaði ekki lífið og fjörið á Flensborgarhöfn í Hafnarfirði í gær þegar hátt í 350 dorgveiðimenn á aldrinum 6-12 ára munduðu veiðarfærin og kepptust við að veiða sem flesta, stærsta og furðulegasta fiska. Fjögur börn fengu sérstök verðlaun og viðurkenningu fyrir frammistöðu sína með veiðarfærin og að sjálfsögðu voru verðlaunin þess eðlis að ýta undir enn fræknari frammistöðu í fiskveiðum.
Það veiddist vel af kola og ufsa
Líkt og hin síðustu ár keppa þátttakendur í þremur flokkum; flestu fiskarnir, stærsti fiskurinn og furðufiskurinn. Að þessu sinni var lítið um furðufiska en það veiddist vel af kola og ufsa. Sú sem veiddi flesta fiska var Ebba Katrín 9 ára aflakló en hún veiddi níu fiska. Þau sem á eftir komu veiddu sitt hvora fimm fiskana en það voru Emma Dís 8 ára og Starkaður 6 ára. Sá sem veiddi stærsta fiskinn, Steinar Pálmi 6 ára, kom alla leið frá Reykjavík til að taka þátt en hann veiddi 315 gr. kola.
Opin dorgveiðikeppni fyrir 6-12 ára
Árlega standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju sem opin er öllum börnum á aldrinum 6-12 ára. Í rúm 30 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og er keppnin afar vel sótt ár hvert og má greina eftirvæntingu og gleði mjög glöggt í augum og fasi barnanna. Leiðbeinendur sumarfrístundar og starfsfólk Vinnuskóla Hafnarfjarðar voru með öfluga gæslu á svæðinu á meðan á keppninni stóð auk þess sem Siglingaklúbburinn Þytur var með björgunarbát siglandi um svæðið.
