Myndlistarsýning Halldórs Árna opnar á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, 1. maí í Litla Gallerý á Strandgötunni. Þetta er 3. sýning hans í þessum litla en vinsæla sýningarými, sem er á milli tveggja húsa sem flestir hafnfirðingar þekkja, en þau hýstu verslanir Magga úrara og skóverslun Geira Jó.

Halldór lærði myndlist í MHÍ 1982-6, hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum, en auk þess kenndi hann listmálun í yfir 30 ár, einkum í Námsflokkunum.

Þema sýningarinnar kallast á við opnunardaginn 1. maí, og heitir sýningin „Góðra verka fólk“. Á sýningunni er einungis ein landslagsmynd, en aðrar myndir hverfast um persónu góðra verka fólks. Ekki endilega verkafólks í þröngasta skilningi, heldur líka fólks sem Halldór Árni hefur kynnst á lífsleiðinni – lífs og liðnum – og hefur auðgað mannlífið í Firðinum með góðri nærveru sinni.

Sýningaropnun verður miðvikudaginn 1.maí 16:00-18:00 og allir velkomnir!

Aðrir opnunartímar:
Fös 3. maí 13:00-18:00
Lau 4. maí 12:00-17:00
Sun 5. maí 14:00-17:00
Þri-fim 7-9. maí 15:00-18:00
Fös 10. maí 13::00-18:00
Lau 11. maí. 12:00-17:00
Sun 12. maí. 14:00-17:00

Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

 

——————————————

 

On 1st of May, the international Labor day, Halldór Árni opens his 3. exhibition of paintings in Gallery Litla Gallery in Strandgata.

Halldor studied Graphic design and Art at the National Arts and Craft school 1982-6. He has had numerous solo and group exhibitions through the years, and has been teaching fine art painting for over 30 years.

The theme of the exhibition in Litla Gallery derives from the 1. of Mai agenda. It displays portraits of older hard workers, but also memorable faces of the Town of Hafnarfjordur, as the artist remembers them. Not only Union people, but good and honest people, living or past.

Exhibition opening will be on Wednesday, May 1st, 18:00-21:00 and everyone is welcome!

Other opening hours:
Wednesday May 1st 18:00-21:00
Friday May 3rd 16:00-21:00
Saturday May 4th 13:00-18:00
Sunday May 5th 13:00-18:00
Tuesday-Thursday Mai. 7th-9th 14:00-17:00
Friday May 10th 16:00-21:00
Saturday May 11th 13:00-18:00
Sunday May 12th 13:00-18:00

The event is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður

Ábendingagátt