Greining á bílastæðanýtingu í miðbæ
Greiningarvinna á bílastæðanýtingu í miðbæ Hafnarfjarðar er hafin og mun sú vinna standa yfir næstu tvo mánuðina. Við greininarvinnuna eru notaðar myndavélar sem staðsettar verða við nokkur gatnamót. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 7. maí sl. samþykkt um bílastæðasjóð Hafnarfjarðar sem byggir meðal annars á vinnu og niðurstöðum starfshópa um málið.
Undanfari og liður í gagnaöflun fyrir bílastæðasjóð
Greiningarvinna á bílastæðanýtingu í miðbæ Hafnarfjarðar er hafin og mun sú vinna standa yfir næstu tvo mánuðina. Við greininarvinnuna eru notaðar myndavélar sem staðsettar verða við nokkur gatnamót. Umræða um bílastæðasjóð hefur komið reglubundið upp síðustu árin og er þessi vinna liður í gagnaöflun og uppsetningu á slíkum sjóði í Hafnarfirði. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 7. maí sl. samþykkt um bílastæðasjóð Hafnarfjarðar sem byggir meðal annars á vinnu og niðurstöðum starfshópa um málið.
Tölulegar upplýsingar um nýtingu
Markmiðið með greiningarvinnunni er að fá tölulegar upplýsingar um hversu margir eru að nýta bílastæði í miðbæ Hafnarfjarðar sem skammtímastæði og hversu margir sem langtímastæði og þá jafnvel heilu dagana. Umferð gangandi, hjólandi og akandi farþega um miðbæ Hafnarfjarðar hefur aukist síðustu ár og mun halda áfram að aukast. Hafnarfjörður nýtur mikilla vinsælla sem bær menningar, lista og viðburða og sem ákjósanlegur staður fyrir fyrirtækjarekstur og framtíðarbúsetu. Mikilvægt er að finna leiðir þannig að þjónusta, viðskipti, verslun, menning og búseta fari vel saman í fallega miðbænum okkar og tryggja sem best aðgengi fyrir alla.
Gert er ráð fyrir að tillögur að aðgerðum í bílastæðamálum liggi fyrir frá og með hausti. Munu aðgerðirnar líka ná til bílastæða annarsstaðar í bænum sem nýtt eru sem langtímastæði og almenn óánægja er með m.a. á Tjarnarvöllum. Með samþykkt bílastæðasjóðs þá getur bærinn betur brugðist við slíkum málum og mun gera það.
60 mínútna skammtímastæði í miðbænum
Í sumar hefur merkingum á skammtímastæðum í miðbænum verið fjölgað. Öll stæði við Strandgötu, Linnetsstíg og á Vesturgötu við Byggðasafn Hafnarfjarðar eru nú 60 mínútna stæði. Öllum 30 mínútna skiltum var skipt út fyrir 60 mínútna skilti og samhliða skerpt á reglum um skammtímastæði. Sumarstarfsmaður hefur fylgt innleiðingunni eftir með góðum árangri.
Fjöldi stæða eru fjær miðbænum og gefa færi á göngutúr. Hafa öll þau sem það geta verið hvött til virkrar þátttöku og til að stíga skrefið að betri heilsu, vænlegri verslun, frábærri þjónustu og góðum menningarstundum í Hafnarfirði með þátttökunni.
Fundargerð bæjarstjórnar þann 7. maí 2025 – sjá mál nr. 1 á dagskrá