Skærustu stjörnur sólkerfisins verða samankomnar í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld kl. 20 til að keppa um ein virtustu kvikmyndaverðlaun veraldar á kvikmyndahátíð sem er raunveruleiki í óraunveruleikanum. Birta Sólveig Söring, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Katla Þ. Njálsdóttir og Kolbeinn Sveinsson eru í hópnum á bak við hátíðina Myndir sem enginn hefur séð leiknar af stjörnum […]
Flokkur: Fréttir
Leið 1 ekur að Skarðshlíðarhverfi frá og með 14. ágúst
Leið 1 ekur að Skarðshlíðarhverfi Frá og með 14. ágúst mun leið 1 aka að Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði. Eftir breytinguna verður biðstöðin Klukkuvellir óvirk. Leiðin mun í staðinn aka um Hnappavelli og Ásvallabraut.Tvær nýjar biðstöðvar, Hamranes og Skarðshlíð opnast á Ásvallabraut. Skipulegðu ferðina þína á strætó.is Sjá breytingu á myndinni hér fyrir ofan
Fjölbreyttar sýningar á nokkrum stöðum
Byggðasafn Hafnarfjarðar er með tvær nýjar sýningar í sumar. Það er annars vegar sýning í forsal Pakkhússins á þjóðlegum munum úr safni Þorbjargar Bergmann og svo er það ljósmyndasýning við Strandstíginn. Þá eru fastar sýningar í nokkrum húsum í bænum. Björn Pétursson bæjarminjavörður og Bryndís Lára Bjarnadóttir, safnvörður á Byggðasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Viðtal við Björn Pétursson […]
Spennandi sýningar og fjölbreyttar göngur
Það er margt í boði í Hafnarfirði í sumar og má þar nefna spennandi sýningar, sumarlestur og laugardagsopnun á bókasafninu og svo er í allt sumar boðið upp á menningar- og heilsugöngur. Aðgangur er ókeypis. Vegglistaverk eftir listamanninn Juan prýðir gaflinn á húsinu við Strandgötu 4. Við gaflinn stendur starfsfólk á þjónustu- og þróunarsviði Hafnarfjarðar.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR […]
Styrkir til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi
Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu bæjarins og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Hafnarfirði á einhvern hátt. Með fastri búsetu, með […]
Haustsýning Hafnarborgar 2023 – kallað eftir tillögum
Haustsýning Hafnarborgar 2023 – kallað eftir tillögum Líkt og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að haustsýningu næsta árs í Hafnarborg. Haustsýningaröðin hóf göngu sína árið 2011 en hingað til hafa tólf sýningar verið valdar úr miklum fjölda innsendra tillagna eftir sýningarstjóra með ólíkan bakgrunn og reynslu. Þá var haustsýning Hafnarborgar […]
Styrkur úr afrekssjóði
Skapandi sumarstörf – Úlfur
FRUMSAMINN STRENGJAKVARTETT – “Heimabærinn” ÚLFUR ÞÓRARINSSON Úlfur Þórarinsson víóluleikari og meðlimur Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins smíðar í sumar jómfrúarverkið sitt sem ber vinnuheitið “Heimabærinn”. Verkið er strengjakvartett í 4 köflum sem allir eru kenndir við Hafnfirska staði eða hluti. Úlfur mun ásamt kvartettnum flytja verkið í Gamla Apótekinu í Hafnarborg þann 18. Ágúst. En kvartettinn ber […]
Eldgos hafið í Geldingardal – gagnlegar upplýsingar
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögregluna á Suðurnesjum, hefur virkjað neyðarstig Almannavarna vegna gossins sem hafið er á ný í Geldingardal. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands rennur hraun í Geldingadölum skammt norðaustan gígsins sem gaus lengst úr í fyrra. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar eru innviðir ekki í hættu en fólk er vinsamlegast beðið um að halda […]
Viðbrögð við og eftir jarskjálfta – að gefnu tilefni
Talsvert hefur verið um skjálftavirkni eins og bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir. Svokallaðir gikkskjálftar staðsettir rétt vestan við Kleifarvatn hafa gert vart við sig nú. Kvikuinnskotið við Fagradalsfjall veldur spennubreytingum bæði vestan við Kleifarvatn og í grennd við Grindavík sem leysir úr læðingi skjálftana. Það er því sennilega ekki kvika á ferðinni við Kleifarvatn eða […]