Jólaævintýri Kötlu og Leós – enn ein uppskera skapandi sumarstarfa

Fréttir

Hrafnhildur Emma Björnsdóttir, “Hremma” er hafnfirsk listakona og rithöfundur sem vann að því síðastliðið sumar og í haust að skrifa og myndskreyta jóladagatal um þau Kötlu og Leó. Hremma mun lesa nokkra kafla úr jóladagatali sínu Jólaævintýri Kötlu og Leós laugardaginn 10. desember kl. 14 í Hamrinum ungmennahúsi.

Jóladagatal á bókarformi – jólaupplestur í Hamrinum 10. desember kl. 14

Hrafnhildur Emma Björnsdóttir, “Hremma” er hafnfirsk listakona og rithöfundur sem vann að því síðastliðið sumar og í haust að skrifa og myndskreyta jóladagatal um þau Kötlu og Leó. Hremma fékk hugmyndina að jólaævintýri Kötlu og Leós árið 2018 þegar Hugmyndadagar RÚV auglýstu eftir jólaefni. Hugmyndin hefur þróast mikið síðan þá, sjónvarpsefnið varð að bók, síðan að teiknimyndasögu og aftur að bók. Lokaverkefni Hremmu í diplómanámi í skapandi greinum hjá Háskólanum á Bifröst var handrit að 24 köflum um systkinin Kötlu og Leó. Hún notaði svo sumarið til að vinna bók upp úr handritinu og myndskreyta.

Viðburðurinn á Facebook 

Nú er komið að uppskerustund!

Þökk sé skapandi sumarstörfum Hafnarfjarðarbæjar þá gafst Hremmu langþráður tími til að vinna verkefni sem hefur verið á hugmyndastigi frá árinu 2018, fullvinna 24 kafla og teikna myndir sem listakonan síðar sendi á Borgarbókasafnið í Reykjavík og vann jóladagatalskeppni. Styttri útgáfa sögunnar birtist núna daglega til jóla en á næsta ári vonast Hremma til að geta gefið út lengri útgáfu sögunnar sem bók. Rithöfundurinn Hremma mun lesa nokkra kafla úr jóladagatali sínu Jólaævintýri Kötlu og Leós laugardaginn 10. desember kl. 14 í ungmennahúsinu Hamrinum að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði.

Aðeins um Jólaævintýri um Kötlu og Leó

“Jólaævintýri Kötlu og Leós“ fjallar um ævintýri systkinanna, Kötlu og Leó, og pabba þeirra, Grím og Kára, í aðdraganda jólanna. Fjölskyldan kveikir á fjórum aðventukertum, verslar jólagjafir í Kringlunni og krakkarnir fá gjafir í skóinn frá 13 þekktum bræðrum. Á Þorláksmessu borða þau skötu og á aðfangadag er jólamaturinn klukkan sex, strax eftir að bjöllurnar hringja í útvarpinu. Systkinin komast að leyndarmáli jólasveinanna og uppgötva að jólin eru í hættu. Einnig koma við sögu jarðhræringar, björgunarleiðangur og tilraun Grýlu til að læra á snjallsíma. Allar sögur Hremmu innihalda fjölbreyttar persónur og Jólaævintýri Kötlu og Leós er þar engin undantekning. Sagan endurspeglar hversdagslegan fjölbreytileika og séríslenskar jólahefðir.

Um Hremmu

Hrafnhildur Emma eða Hremma er fædd í Bandaríkjunum árið 1998 en flutti í Hafnarfjörðinn árið 2000 og hefur búið þar síðan. Hún keypti sína fyrstu íbúð í Hafnarfirði á síðasta ár með unnustu sinni og líkar vel. Hremma lærði leiklist í Fjölbrautaskóla Garðabæjar og útskrifaðist þaðan vorið 2017. Árið 2019 fór hún í Musik og Teaterhøjskolen í Toftlund í Danmörku, kláraði diplómanám í skapandi greinum hjá Háskólanum á Bifröst árið 2021 og stundar nú nám í bókmenntafræði og ritlist við Háskóla Íslands. Áhugi á leiklist, sögum og leikhúsi hefur ætíð verið til staðar. Hremma hef leikið í þó nokkrum sýningum, skrifað fjögur mislöng leikverk, leikstýrt, verið sýningastjóri, búið til leikmuni og saumað búninga svo eitthvað sé nefnt. Á starfsferli sínum hefur Hremma mest unnið með börnum og því ekki undarlegt að hún skrifi mikið fyrir börn.

Skapandi sumarstörf Hafnarfjarðarbæjar halda áfram að gefa…..

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Hamarinn ungmennahús að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-20 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Í gegnum skapandi sumarstörf fá valdir hópar tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða. Klara Ósk Elíasdóttir er verkefnastýra Skapandi sumarstarfa.

 

 

Ábendingagátt