Framkvæmdir eru hafnar af fullum krafti við byggingu Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn, en þessi nýi stálþilsbakki sem verður um 110 metra langur mun liggja milli enda Suðurbakka og Óseyrarbryggju framan við Fornubúðir. Ráðgert er að þessi bakki verði aðalviðlegustaður rannsóknarskipa Hafrannsóknarstofnunar sem mun flytja starfsemi sína að Suðurhöfninni á síðari hluta þessa árs. Til undirbúnings fyrir […]
Flokkur: Fréttir
Viðburða- og verkefnastyrkir
>>English and Polski below <<Viðburða- og verkefnastyrkir – Grants for events and cultural projects – Dotacje do wydarzeń i projektów kulturalnych. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti til og með 17. febrúar 2019. […]
Sandur í boði fyrir íbúa
Vetur konungur kallar og nú er staðan sú og veðurskilyrði þannig að nokkur hálka hefur myndast á götum, göngustígum og bílaplönum víða um bæinn. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar sér um mokstur og hálkuvarnir en einnig eru kallaðir til verktakar á annatímum. Almennt viðmið er þjónusta frá kl. 7:30 – 22 en veður og færð stýra þjónustutíma. Þegar […]
Snemmtæk íhlutun í Bjarkalundi
Frá opnun leikskólans Bjarkalundar haustið 2016 hefur starfsfólk leikskólans unnið að þróunarverkefninu Snemmtæk íhlutun í leikskólastarfi undir handleiðslu Ásthildar Bj. Snorradóttur talmeinafræðings. Allt starfsfólk leikskólans hefur tekið þátt í verkefninu og lagt sitt af mörkum við innleiðingu þess og afraksturinn er handbók í snemmtækri úthlutun sem kom formlega út 6. febrúar síðastliðinn. Markmiðin með þróunarverkefninu […]
Dagur leikskólans 2019
Í dag 6. febrúar er dagur leikskólans og af því tilefni hefur leikskólastarfið í bænum á sér hátíðlegan blæ. Bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir heimsótti Hörðuvelli, elsta leikskóla bæjarins í morgun, en saga hans nær aftur til ársins 1935 þegar verkakvennafélagið Framtíðin hóf starfsemi á Hörðuvöllum. Bæjarstjóri tók þátt í söngfundi í tilefni dagsins og heimsótti […]
Grunnskólahátíð
Miðvikudaginn 6. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði. Félagsmiðstöðvarnar og skólarnir hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og það verið unglingum og verkefnum þeirra til sóma. Um daginn verða leiksýningar í Gaflaraleikhúsinu kl. 11:30, 13:00 og 14:30. Þar sýna nemendur úr skólum bæjarins og leikhópur Gaflaraleikhússins afrakstur allskonar listtengdrar vinnu. Um kvöldið mun dansleikur […]
Verðkönnun
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni. 1. Vélavinna fyrir Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar 2019-20 Um er að ræða fasta vinnu fyrir hjólavél eða traktorsgröfu yfir sumartíma (16-20 vikur) við almenn umhverfisstörf og íhlaupavinnu í minni verkefni á öðrum tíma árs. Tilboðsgögn er hægt að sækja til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar Norðurhellu 2, Hafnarfirði eða fá sent […]
Bæjarstjórnarfundur 6. febrúar
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 6. febrúar. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Vetrarhátíð í Hafnarfirði 2019
Vetrarhátíð verður haldin dagana 7. – 10. febrúar 2019 og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 8. febrúar 2019 […]
Haustsýning Hafnarborgar 2019: Allt á sama tíma
Listráð Hafnarborgar hefur valið sýninguna Allt á sama tíma sem haustsýningu Hafnarborgar 2019, í sýningarstjórn Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar Sigurðarsonar. Hugmyndin með sýningunni er að kanna hvernig listamenn takast á við það frelsi sem finnst í myndlist í dag. Hvernig hægt er að búa til merkingu úr list sem getur verið hvað sem er – […]