Category: Fréttir

200 börn syngja saman

Laugardaginn 12. mars munu hafnfirskir barnakórar koma fram á árlegu kóramóti þeirra sem nefnist Barnakóramót Hafnarfjarðar og fer fram í Víðistaðakirkju. Um 200 hafnfirsk börn munu taka þátt í mótinu sem haldið er í 19. skipti nú í ár.  Barnakóramót Hafnarfjarðar 2016 verður haldið í Víðistaðakirkju laugardaginn 12. mars. Þar munu sex barnakórar í Hafnarfirði syngja hver […]

Bæjarhraun – skipulagsbreyting

Breyting á deiliskipulagi Bæjarhraun, göngu- og reiðhjólastígur.  Skipulags- og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2016 að auglýsa tillögu að breytingunni í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að bætt er við 16 bílastæðum við Bæjarhraun. Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, […]

Stóra upplestrarkeppnin

ÞÉR er boðið á Stóru upplestrarkeppnina.   Keppnin  fer fram í Hafnarborg þriðjudaginn 8. mars frá kl. 17-19. Keppnin er nú haldin í tuttugusta skipti og fagnar því 20 ára afmæli í ár. Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Hafnarfjarðar, lesa brot úr skáldverki og ljóð.  Að lokum mun dómnefnd […]

Bæjarstjórnarfundur 2. mars

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 2. mars 2016 kl. 16:00 Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu. Útsending hefst kl 16:00.

Styrkir bæjarráðs 2016

Bæjarráð veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Úthlutun styrkja fer fram tvisvar á ári og er nú komið að fyrstu úthlutun ársins í ár.  Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2016.  Umsækjendur […]

Faldbúningur Rannveigar

Faldbúningur maddömu Rannveigar Sívertsen var afhentur formlega í dag á 272 ára afmælisdegi hennar. Ákveðið var að ráðast í gerð faldbúnings fyrir tveimur árum síðan, þá á 270 ára stórafmælisdegi Rannveigar. Búningurinn, sem unninn er eftir lýsingum úr dánarbúi Rannveigar, verður framvegis til sýnis í Sívertsen-húsinu.  Annríki – þjóðbúningar og skart hefur síðustu tvö árin […]

Fræðslustjóri – umsækjendur

Hafnarfjarðarbær auglýsti fyrir skömmu stöðu fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar lausa til umsóknar. Fjórtán umsækjendur sóttu um stöðuna.   Hér má sjá lista yfir umsækjendur : Nafn  Titill Anna Kristín Halldórsdóttir Verkefnastjóri  Árni Þór Óskarsson Lögfræðingur  Ásta Lilja Bragadóttir Fangavörður Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir Stjórnarformaður  Fanney Dóróthe Halldórsdóttir Skólastjóri Geir Bjarnason Íþrótta- og tómstundafulltrúi Guðrún Þórðardóttir Kennslu- og lýðheilsufræðingur […]

Fræðsla á skipulagsdegi

900 manna starfshópur leik- og grunnskóla í Hafnarfirði sótti sameiginlega fræðslu á skipulagsdegi í dag. Fræðslan tengdist læsisverkefni bæjarins, LESTUR ER LÍFSINS LEIKUR, þar sem viðfangsefnið var undirstöðuþættir lestrar. Nálgun út frá aldri barna Fræðslunni var skipt í fimm hluta þar sem viðfangsefnið var nálgast út frá því hvaða aldri börnin eru sem starfsmaður er […]

Frítt í sund í vetrarfríi

Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar dagana 25. og 26. febrúar 2016.  Frítt er í sund í Hafnarfirði þessa daga fyrir alla fjölskylduna: Ásvallalaug Suðurbæjarlaug Sundhöll Hafnarfjarðar  Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu ÍTH um frían aðgang að sundlaugum Hafnarfjarðar í vetrarfríi grunnskóla. Einnig að gert verði ráð fyrir því fyrirkomulagi í vetrarfríum grunnskóla […]

Býttað og selt í Firði

Það voru um í kringum tíu krakkar sem settu sig í gír bókasölumannsins og – konunnar um helgina í Verslunarmiðstöðinni Firði. Börnin komu með bækur til sölu og býttis sem þau hafa sjálf lesið oftar en einu sinni og vildu með þessu endurnýja lager sinn eða eignast smá pening m.a. til að safna fyrir nýjum […]