Blásið verður til tveggja daga hátíðarhalda um helgina í Hafnarfirði í tilefni Sjómannadagsins. Fjöldi einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka hefur tekið sig saman og sett upp heimilislega dagskrá við Flensborgarhöfn sem höfðar til allrar fjölskyldunnar. Hátíðarsvæðið opnar kl. 13 báða dagana og er opið til klukkan 17. Sjómannadagurinn skipar stóran sess í hugum Hafnfirðinga enda […]
Flokkur: Fréttir
Pepper heimsótti Arnarberg
Vélmennið Pepper heimsótti leikskólann Arnarberg í morgun. Um er að ræða mannlegt vélmenni sem sérhannað er fyrir kynningar og fræðslu og þ.á.m. forritunarkennslu í skólum. Eitt af sérkennum Pepper er að greina svipbrigði og raddblæ viðmælanda en um leið að skapa gleði og ánægju. Pepper, sem er á landinu í tilefni af 25 ára afmæli […]
Okkur vantar fleiri flokkstjóra!
Hafnfirsk ungmenni eru spennt fyrir vinnu hjá Hafnarfjarðarbæ nú í sumar og jókst aðsókn umtalsvert á milli ára – við fögnum því! Okkur vantar fleiri flokkstjóra! Vegna aukinna umsvifa óskar Vinnuskóli Hafnarfjarðar eftir fleiri flokkstjórum 21 árs og eldri til starfa og best væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir eru beðnir um […]
Fyrstu tillögur um legu Borgarlínu kynntar
Þáttaskil verða í undirbúningi fyrirhugaðrar Borgarlínu, nýs hágæða samgöngukerfis sem fá mun sérrými í gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins, þegar vinnslutillögur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til 2040 og aðalskipulagi sveitarfélaganna sex sem standa að Borgarlínu verða kynntar á sameiginlegum fundi sveitarfélaganna í Salnum í dag. Þar verða kynntar tillögur um staðsetningu línuleiða og helstu stöðva Borgarlínu og […]
Samþykkt á breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar
Samþykkt á breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Fornubúða 5 Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 27. 04. 2017 breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna lóðarinnar Fornubúðir 5. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemd barst og hefur þeim, sem gerðu athugasemd, verið send umsögn sveitarstjórnar. Sú breyting var gerð frá auglýstri tillögu að heimilt […]
Opnunartími sundstaða um hvítasunnuna
Opnunartími sundstaða Hafnarfjarðar um hvítasunnuna verður sem hér segir: Laugardagur3. júní Hvítasunnudagur4. júní Annar í hvítasunnu5. júní Þriðjudagur6. júní Ásvallalaug 8-18 Lokað 8-17 Lokað* Suðurbæjarlaug 8-18 8-17 8-17 6:30-21 Sundhöll Lokað Lokað Lokað 6:30-14* *Vegna endurmenntunarnámskeiðs starfsmanna
Bæjarstjórnarfundur 7. júní
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 7. júní. Fundurinn hefst kl. 14 í Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundi er streymt beint á heimasíðu. Hér má sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl. 14.
Samningur við Specialisterne á Íslandi
Fjölskylduráð Hafnarfjarðar endurnýjaði samning við Specialisterne á Íslandi á fundi sínum þann 2. júní s.l. Markmið samkomulagsins er að veita starfsþjálfun og gera starfsmat fyrir fatlaða atvinnuleitendur. Samstarf Fjölskylduþjónustunnar og Specialiserne hefur gengið vel og er mikilvægur hlekkur í því skyni að auka atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði.
Samgönguásar borgarlínu
Lögð er fram til forkynningar vinnslutillaga vegna breytinga á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillagan felst í að festa legu samgönguása fyrir Borgarlínu og að skilgreina viðmið um uppbyggingu á áhrifasvæðum. Lögð er fram til kynningar vinnslutillögur vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016, Hafnarfjarðar 2013-2025, Kópavogsbæjar 2012-2024, Mosfellsbæjar […]
Hagir og líðan ungs fólks
Á fundi Íþrótta- og tómstundanefndar nýverið var kynnt ný skýrsla um hagi og líðan barna í 5. – 7. bekk í Hafnarfirði. Það er Rannsókn og greining sem gerði þessa rannsókn fyrir Menntamálaráðuneytið. Skýrslan fjallar um ýmsa þætti í lífi barnanna eins og líðan í skóla, stríðni, tölvuleikjanotkun, ástundun íþrótta og samveru með foreldrum. Um […]